Sport

Jón Margeir bætti Íslandsmetið og hafnaði í ellefta sæti

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Jón Margeir Sverrisson hefur lokið keppni á Ólympíumóti fatlaðra en hann varð í morgun í ellefta sæti í 100 m bringusundi í fötlunarflokki SB14. Hann bætti um leið Íslandsmet sitt um 1/100 úr sekúndu.

Jón Margeir synti á 1:13,91 og varð í fimmta sæti í sínum riðli. Íslandsmet Jóns Margeirs frá því á Evrópumótinu í Berlín á síðasta ári. Japaninn Yasuhiro Tanaka náði besta tímanum í undanrásunum í morgun en hann kom í mark á nýju heimsmeti, 1:07,08 mín.

Jón Margeir getur þó vel við unað enda náði hann þeim stórbrotna árangri að vinna til gullverðlauna í 200 m skriðsundi. Hann varð svo í sautjánda sæti í 100 m baksundi en aðeins stóð til boða að keppa í þessum þremur greinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×