Sport

Mo Farah vann aftur: Gullverðlaunin eru fyrir ófæddar tvíburastelpur hans

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mo Farah fagnar sigri sínum.
Mo Farah fagnar sigri sínum. Mynd/Nordic Photos/Getty
Bretinn Mohamed Farah tryggði sér í kvöld sigur í 5000 metra hlaupi á Ólympíuleikunum í London en hann hafði áður unnið 10.000 metra hlaupið á leikunum. Mo Farah varð heimsmeistari í 5000 metrunum í Daegu í Suður-Kóreu fyrir ári síðan og er að sanna sig sem einn besti millivegahlaupari sögunnar.

Mohamed Farah kom í mark á 13:41.66 mínútum en annar varð Dejen Gebremeskel frá Eþíópíu og Thomas Longosiwa frá Kenía fékk síðan bronsið. Það var mögnuð stemning á vellinum þegar hlaupið fór fram og Bretinn fékk einstakan stuðning.

Mo Farah komst þarna í úrvalshóp manna sem hafa unnið tvöfalt í lengstu millivegahlaupunum á Ólympíuleikum en það eru menn eins og frá Emil Zatopek Tékklandi, Lasse Viren frá Finnlandi, Miruts Yifter frá Eþíópíu og svo Eþíópíumaðurinn Kenenisa Bekele sem vann tvöfalt á leikunum í Peking fyrir fjórum árum.

„Það er stórkostlegt að vera búinn að vinna tvö gull. Hver hefði trúað þessu?," sagði Farah eftir sigurinn en hann kom til Bretlands með föður sínum þegar hann var aðeins átta ára gamall.

„Ég fékk frábæran stuðning frá áhorfendum og það skiptir mig miklu máli. Þessi gullverðlaun eru samt fyrir dætur mínar sem eru á leiðinni," sagði Mo Farah en kona hans er ófríss af tvíburastelpum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×