Kári Steinn í 42. sæti í maraþoni karla Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar 12. ágúst 2012 09:29 Hér er Kári Steinn við ráslínuna skömmu áður en var ræst. Mynd/E. Stefán
Kári Steinn Karlsson náði frábærum árangri í maraþonhlaupi karla á Ólympíuleikunum í London en hann kom í mark á 2.18:47 klst sem skilaði honum í 42. sæti af 105 keppendum. Kári Steinn náði ekki að bæta Íslandsmet sitt sem hann setti í Berlín í fyrra en þá hljóp hann á 2.17:12 klst. Aðstæður voru nokkuð erfiðar í dag - sólin skein stærstan hluta tímans og þá er brautin almennt talin hægari en í Berlín. Hann byrjaði aftarlega í hópnum en vann sig hægt og rólega upp fyrir miðjan hóp og kláraði hlaupið afar vel. Viðtal birtist við hann á Vísi innan tíðar.Lokatími: 2.18:47 klst. 42. sæti12.13: Kári Steinn er að gera frábæra hluti. Er nú í 46. sæti.Millitími - 40 km: 2.11:28, 46. sæti - Berlín 2011: 2.10:0212.10: Stephen Kiprotich frá Úganda kemur í mark á 2.08:01 klst og fagnar ótrúlegum sigri. Abel Kirui frá Keníu varð annar á 2.08:27 klst og Wilson Kiprotich frá Keníu þriðji á 2.09:37 klst. Magnaður endasprettur hjá þessum 23 ára Úgandamanni.12.05: Þetta er söguleg stund fyrir Úganda. Fyrstu og einu gullverðlaun þjóðarinnar hingað komu á leikunum í München árið 1972.12.04: Það verður ekki sett heimsmet í dag og væntanlega ekki Ólympíumet heldur.12.03: Munurinn er nú nítján sekúndur þegar fremstu menn fór framhjá 40 km skiltinu. Kiptrotich frá Úganda ætlar að taka gullið.11.57: Enn færist Kári Steinn upp listann. Stefnir í glæsilegan árangur hjá honum.Millitími - 35 km: 1.54:21, 53. sæti (+8:18 mín) - Berlín 2011: 1.53:0311.54: Ótrúlegt. Úgandamaðurinn Kiprotich er búinn að setja í fluggírinn og er kominn í forystu þegar fimm km eru eftir. Hann virðist nákvæmlega ekkert hafa fyrir þessu.11.50: Keníumennirnir Kiprotich og Kirui eru að hrista Úgandamanninn Kiprotich af sér. Það er ekki mikið eftir af hlaupinu.11.47: Sömu þrír eru enn í forystu og nánast á sama tíma hjá 35 km skiltinu - 1.46:03 klst. Næstu menn á eftir eru tæpum tveimur mínútum hægari.Millitími - 30 km: 1.37:25, 61. sæti (+7:10 mín) - Berlín 2011: 1.36:4311.36: Kári Steinn var að hlaupa yfir marklínuna í þriðja og næstsíðasta skipti. Hann hljóp nú einn en með annan rétt á eftir sér. Það sást á honum að hann er að gefa allt sitt í þetta.11.30: Tveir af fyrstu þremur hlaupurunum heita Kiprotich. Annars vegar Wilson Kiprotich frá Keníu og svo Stephen Kiprotich frá Úganda. Þriðji forystusauðurinn heitir Abel Kirui en þeir voru allir á 1.30:15 klst eftir 30 km.11.25: Það hefur sem betur fer aðeins dregið fyrir sólu síðustu mínúturnar. Við í blaðamannastúkunni erum þakklátir fyrir það, svo ég tali nú ekki um hlauparana.11.23: Kári Steinn færist aðeins frá Íslandsmetinu miðað við millitímana en er þó alltaf að taka fram úr öðrum hlaupurum. Hann er nú kominn upp í 67. sæti og hefur unnið sig upp um 27 sæti frá fyrsta millitímanum.Millitími - 25 km: 1.21:03, 67. sæti (+52 sek) - Berlín 2011: 1.20:3111.10: Kári Steinn er nú rúmlega hálfnaður og enn í fínum málum. Þetta lítur vel út.Millitími - Hálfmaraþon: 1.08:18, 74. sæti (+5.03 mín) - Berlín 2011: 1.07:58Millitími - 20 km: 1.04:46, 76. sæti (+4:49 mín) - Berlín 2011: 1.04:2811.05: Kiprotich frá Keníu fór 20 km á 59:57 mín og hálfmaraþonið á 1.03:15 klst. Hann er fremstur.10.59: Kári Steinn var í sex manna hópi þegar hann hljóp framhjá mér rétt áðan en það hefur dreifst mjög úr keppendum og margir að hlaupa einir.10.57: Þrír keppendur eru þegar hættir keppni, þar af tveir frá Bandaríkjunum. Sá þriðji er frá Lettlandi.10.56: Góður millitími hjá Kára og er hann nú að hlaupa undir Íslandsmetinu sínu.Millitími - 15 km: 45.18 mín, 79. sæti (+3.17 mín) - Berlín 2011: 48.2510.54: Kári Steinn var að fara yfir marklínuna í annað skipti af fjórum alls. Hann fékk góðan stuðning Íslendinga í stúkunni og þakkaði fyrir sig með því að steyta hnefanum.10.37: Sólin skín og er hitinn sagður vera 21 gráða. Það er smá gola sem gerir lífið aðeins auðveldara fyrir hlauparana.10.33: Kári Steinn er aðeins búinn að auka hraðann og fór fyrstu 10 km á nánast sama tíma og í Berlín.Millitími - 10 km: 32:21 mín, 88. sæti (+1:43 mín) - Berlín 2011: 32.2010.31: Brasilíumaðurinn Almeida hefur tekið forystuna en hann hljóp fyrstu tíu kílómetrana á 30:38 mínútum.Millitími - 5 km: 16:15 mín, 94. sæti (+52 sek) - Berlín 2011: 16.0810.17: Kári Steinn hljóp fyrstu fimm kílómetrana á sextán mínútum og fimmtán sekúndum - sjö sekúndum hægar en í Berlínarmaraþoninu í fyrra. Hann er í 94. sæti eins og er og 52 sekúndum á eftir fremstu mönnum, Kiprotich og Mutai frá Keníu.10.13: Hlaupararnir eru nú búnir að fara fyrsta hringinn en hann er aðeins 3.571 m. Kári Steinn hljóp þá vegalengd á um 11:38 mínútum og var rétt fyrir aftan miðjan hóp. Við bíðum þó enn eftir fyrsta millitímanum (5 km) sem er væntanlegur innan skamms.10.04: Það er troðfullt af áhorfendum við hlaupaleiðina enda er þetta einn af þeim viðburðum þar sem hægt er að sjá íþróttamennina keppa án þess að borga fyrir það. Fjölmargir áttu ekki kost á að fá miða á Ólympíuviðburði og nýta sér því tækifærið í dag til að fá stemninguna beint í æð.10.00: Þá er þetta hafið. Þekktustu hlaupararnir voru bara fremst á meðan þeir voru kynntir til leiks og svo fengu allir að fara upp að ráslínunni. Kári Steinn var um miðjan hópinn þegar hlaupið var ræst.09.53: Hlaupararnir eru komnir að ráslínunni. Aðeins þeir með bestu tímana fá að ræsa við línuna sjálfa en aðrir verða að byrja um fimm metrum aftar. Kári Steinn er í þeim hópi.09.50: Íslandsmet Kára Steins er 2.17:12 klst og var sett í Berlínarmaraþoninu í september í fyrra. Það var fyrsta maraþonhlaup Kára Steins og dugði tíminn til að tryggja honum þátttökurétt hér í London. Kári Steinn hljóp svo sitt annað maraþon í Treviso á Ítalíu í mars síðastliðnum og kom þá í mark á 2.18,53 klst.09.48: Hlaupið er nákvæmlega 42 kílómetrar og 195 metrar sem samsvarar þeirri vegalengd sem gríski hermaðurinn Filippídes mun hafa hlaupið rétt tæpum 500 árum fyrir krist. Þá hljóp hann frá borginni Maraþon til Aþenu til að flytja þær fréttir að Grikkir hefðu haft betur í orrustu þeirra við Persa. Reyndar var hlaupið sléttir 42 km þar til á leikunum í London árið 1908 þegar hlauparar voru látnir hlaupa 195 m í viðbót til að fara framhjá bresku konungsfjölskyldunni sem fylgdist með hlaupinu. Síðan þá hefur þessi vegalengd verið fest í sessi.09.42: Heimsmethafinn Patrick Makau frá Keníu verður ekki á meðal þátttakenda í dag, eins og lesa má um hér. Þá má lesa viðtal við Kára Stein sem birtist í Fréttablaðinu í gær hér.09.39: Alls eru 105 keppendur skráðir til leiks í dag. Kári Steinn vonar að hann verði um miðjan hóp eftir að dreifist úr þvögunni í upphafi.09.38: Það er mjög fínt veður í London þessa stundina. Léttskýjað, 20 stiga hiti og örlítil gola. Það verður þó örugglega heitara eftir því sem líður á daginn, sérstaklega ef sólin fær að skína.09.30: Velkomin til leiks. Vísir heilsar frá rás- og marklínunni á The Mall í hjarta Lundúna þar sem maraþonhlaup karla á Ólympíuleikunum í London verður ræst eftir 30 mínútur.
Mest lesið Birkir gæti hætt: Fékk spennandi starf en svo fór allt í skrúfuna Fótbolti Gæti orðið dýrastur í sögu KR Íslenski boltinn Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Handbolti Stjarnan staðfestir komu Caulker Íslenski boltinn Vann hundrað kílómetra hlaup og gaf brjóst á leiðinni Sport Karólína Lea á bólakaf í kalda pottinum Fótbolti Rauð hitaviðvörun hjá stelpunum okkar í Serbíu Fótbolti Ronaldo semur um að spila til 42 ára aldurs Fótbolti Tvö rauð spjöld og slagsmál er Inter komst áfram Fótbolti Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Snorri Dagur aðeins fimm sekúndubrotum frá verðlaunasæti á EM Kraftaverkakona sem þekkir Ísland út og inn Snorri Dagur í úrslit á EM Rauð hitaviðvörun hjá stelpunum okkar í Serbíu Bulls veðja á fyrrum lærisvein Baldurs Ronaldo semur um að spila til 42 ára aldurs Spila um Forsetabikarinn á HM Fyrirliði Brentford að ganga til liðs við Arsenal Gæti orðið dýrastur í sögu KR Stjarnan staðfestir komu Caulker Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Birkir gæti hætt: Fékk spennandi starf en svo fór allt í skrúfuna Sjáðu Íslandsmetin falla og fagnaðarlætin í lauginni Mbappé mættur aftur mun léttari eftir magakveisuna Mikael mættur til Stokkhólms að semja við Djurgården Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Flagg fer til Dallas Tvö rauð spjöld og slagsmál er Inter komst áfram Vann hundrað kílómetra hlaup og gaf brjóst á leiðinni Stefán Teitur og félagar auglýsa Tik Tok stjörnur Dagskráin: Stelpurnar hennar Betu í beinni og Norðurálsmótið Þóra um hártogið í Bestu: „Þetta er bara botnhegðun“ Neymar hlustaði á hjartað sitt Reynir við áttunda heimsmeistaratitil sinn Bayern gæti þurft að fara svakalega leið að titlinum Karólína Lea á bólakaf í kalda pottinum Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Komin með hundrað meistaraflokksleiki fyrir nítján ára afmælið sitt Slógu saman heimsmetið í bakgarðshlaupum Sjá meira