Meistaraverkið Mýs og menn í Borgarleikhúsinu 15. ágúst 2012 18:00 Ólafur Darri og Hilmar leika vinina og Lennie og George í Borgarleikhúsinu um jólin.
Mýs og menn, sem verður frumsýnd þann 29. desember. Skáldsagan Mýs og menn er eftir Nóbelsverðlaunahafann John Steinbeck. Hún er löngu orðin sígild og er meðal annars mikið lesin í skólum um allan heim. Fyrsta kvikmyndin eftir sögunni var gerð árið 1939 og var hún tilnefnd til fernra Óskarsverðlauna það ár. "Þetta er allt mjög spennandi því þessi saga er eitt mesta meistaraverk bókmenntasögunnar," segir Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri Borgarleikhússins um jólasýningu leikhússins þetta árið. Ólafur Darri Ólafsson skrifaði nýlega undir samning við Borgarleikhúsið en hann fer með hlutverk hins einfalda og elskulega Lennie. Ólafur Darri er staddur í Svíþjóð um þessar mundir en sagðist í stuttu samtali vera mjög spenntur fyrir hlutverkinu. Hilmar Guðjónsson leikur besta vin Lennie og verndara hans, George. Hann segist vera byrjaður að undirbúa sig þrátt fyrir að æfingar hefjist ekki fyrr en í nóvember. "Tengdaforeldrar mínir áttu handrit að leikritinu frá árinu 1963 inni í geymslu hjá sér svo ég gróf það upp og er búinn að vera að stúdera það," segir hann. Hann segir George vera mann sem finnist hann stöðugt þurfa að vinna. "Hann langar að vera meira eins og Lennie sem dreymir bara um kanínur og hvolpa en leikurinn og aginn innra með honum eiga í stöðugri baráttu," segir hann. Álfrún Örnólfsdóttir fer með eina kvenhlutverkið í leikritinu en líkt og Ólafur Darri skrifaði hún undir samning við Borgarleikhúsið á dögunum. Hún segir það leggjast vel í sig að vinna með öllum þessum strákum. "Ég mæti með næga kvenorku til að vega upp á móti þeim," segir hún og hlær. "Persónan mín er ánægð með að vera eina konan á svæðinu og nýtir sér kynferðislegu athyglina sem hún fær. Ég er alls ekki mikill daðrari í mér sjálf en það sem er svo skemmtilegt við þetta starf er að fá að túlka persónu sem er svo ólík manni sjálfum," bætir hún við. Jón Páll Eyjólfsson leikstýrir verkinu en hann er einn eftirsóttasti leikstjórinn í bransanum í dag. Bæði Hilmar og Álfrún segjast hlakka mikið til að vinna með honum. "Jón Páll er svo góður í að skrúfa upp spennu og dramatík sem er til dæmis það sem mér fannst vanta í myndina," segir Hilmar. "Hann er krefjandi leikstjóri sem ýtir manni út á ystu nöf. Það er ótrúlega gefandi að vinna með honum," bætir Álfrún við.
Mest lesið Stór brjóst eru stór Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Lífið Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Lífið Fengu Dern í stað Bonham Carter Lífið Fleiri fréttir Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás Sjá meira