Sport

Árni Már: Þetta er greinilega Ólympíutíminn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Árni eftir sundið í morgun.
Árni eftir sundið í morgun. Mynd/Valli
Árni Már Árnason keppti í 50 m skriðsundi á Ólympíuleikunum í morgun og gat ekki annað en brosað að þeirri staðreynd að hann hafi komið í mark á nákvæmlega sama tíma og í Peking fyrir fjórum árum síðan.

„Þetta var meira að segja sama braut. Þetta er greinilega Ólympíutíminn hjá mér," sagði Árni við Vísi eftir sundið í morgun.

„Ég er samt ánægður með tímann. Ég ætlaði að fara undir 22,50 en þetta var erfitt. Maður fær bara eitt tækifæri - eitt sund - og þá þarf allt að heppnast."

Hann synti á 22,81 sekúndu og var í fimmta sæti í sínum riðli. Alls varð hann í 31. sæti af 58 keppendum en þess má geta að á Ólympíuleikunum í Peking endaði hann í 44. sæti af 97 keppendum.

Fékk ekki að synda skriðsund

Árni hefur nánast ekkert synt skriðsund síðan á leikunum í Peking árið 2008 þar sem háskóli hans í Bandaríkjunum vildi frekar nota hann í bringusundi fyrir lið sitt.

„Ég ákvað bara að kýla á þetta aftur í sumar og reyna að komast inn. Ég náði að bæta mig og komast inn sem ég var mjög ánægður með,“ sagði hann en hann bætti Íslandsmet sitt í greininni í síðasta mánuði þegar hann synti á 22,53 sekúndum. Sá tími dugði til að komast inn á leikana.

„Ég bætti mig mikið í sumar og náði að toppa þá. Ég ætlaði að toppa aftur hér en það hefur greinilega ekki gengið nógu vel.“

„Ég er samt sáttur. Skriðið lítur ágætlega út hjá mér og Jacky [Pellerin, landsliðsþjálfari] segir að ég eigi eitthvað inni ef ég einbeiti mér að því áfram.“

Hann segir þó framtíðina óráðna en næst á dagskrá er að taka sér frí. „Ég fer svo aftur út í skólann í haust og klára gráðuna mína um jólin. Svo kem ég heim og ákveði hvað ég geri þá. Framtíðin er óráðin eins og er."

Hvert sekúndubrot skiptir máli

Meðal þess sem hann segist geta bætt sig í sé viðbragðið. „Það skiptir gríðarlega miklu máli í svona stuttu sundi og ég er ekki með nógu gott viðbragð miðað við sprettsundsgæjana. Það er eitthvað sem ég get unnið í."

Það er því hvert sekúndubrot sem telur. „Ég komst að því þegar ég var að reyna að ná lágmarkinu. Það skipti öllu máli að ná þessum tíma, 22,53, því munurinn á þeim tíma og þessum tíma er mikill og gífurlegur fjöldi sundmanna þarna á milli."

„Hvert sekúndubrot skiptir máli og það er afar hörð keppni í þessari grein."

„Annars gafst lítill tími til að njóta sundsins. Þetta gerist allt sjálfkrafa og það er ekki margt sem fer í gegnum hugann á þessum stutta tíma. Það var aðallega fyrir sundið að maður sá fjöldann og allt sem var að gerast í kringum mann. Það gaf mér góða innspýtingu."

„Ég hef annars notið þess að vera á meðal þeirra allra bestu hér á leikunum og þessum íslenska hóp. Þetta hefur verið frábær reynsla og ótrúlega gaman. Ég er mjög ánægður."


Tengdar fréttir

Árni: Mikilvægustu 20 sekúndur lífs míns

Vísir kynnir til sögunnar íþróttafólkið sem keppir fyrir hönd þjóðarinnar á Ólympíuleikunum í London. Í dag er komið að Árna Má Árnasyni sem keppir í 50 m skriðsundi.

Árni synti á sama tíma og fyrir fjórum árum | endaði í 31. sæti

Árni Már Árnason varð fimmti í sínum riðli í 50 metra skriðsundi á Ólympíuleikunum í London. Hann kom í mark á tímanum 22,81 sek, sem er nákvæmlega sami tími og hann synti á fyrir fjórum árum á ÓL í Peking. Íslandsmet hans er 22,53 sek., sem hann setti á þeessu ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×