Þormóður: Eins og að lenda fyrir bíl Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar 3. ágúst 2012 09:23 Þormóður í glímunni í dag. Mynd/Valli
Þormóður Jónsson féll úr leik á Ólympíuleikunum í London í morgun eftir að hafa tapað fyrir Rafael Silva frá Brasilíu í 32-liða úrslitum +100kg. Silva vann fullnaðarsigur eftir eina mínútu og 48 sekúndur en hann er þriðji á heimslista og ríkjandi Ameríkumeistari í greininni. Þormóður reyndi að verjast eins vel og hann gat en þegar sigurbragðið kom var hann varnarlaus. „Við vissum að hann myndi koma þarna yfir með hægri höndina. Ég reyndi að stoppa það og gekk það eftir í smá tíma. Svo náði hann að festa hana og þá var þetta orðið mjög erfitt." „Svo kom sóknin og þetta var bara óverjandi. Hann náði hnénu á mér og ef ég hefði reynt að standa þetta af mér þá hefði það bara farið," sagði Þormóður. „Hann setti mig næstum í gegnum gólfið. Maður er ekki oft felldur svona. Þormóður mætti Silva á móti í Varsjá í fyrra og var það allt öðruvísi glíma, segir Þormóður. Silva vann þó á ippon þá. „Það var mun seinna í mótinu. Þá var hann aðeins linari en í dag kom hann greinilega mjög ákveðinn til leiks. Ég fílaði mig samt ágætlega og var sprækur. Vandamálið var ekki að hann væri sterkur og stór heldur að hann náði að gera það sem hann vildi gera." „Ég reyndi að stoppa það en það tókst ekki. Ég er ánægður með að ég var með rétt „gameplan" en ég náði bara ekki að framfylgja því." Þormóður var búinn að segja að hann þyrfti að varast hægri höndina hjá Silva. Hún reyndist lykilatriði í dag. „Ég náði að stoppa hana lengi vel en svo komu 1-2 skipti þar sem það tókst ekki, þó svo að ég hafi verið með báðar mínar hendur á henni. Hann er svo sterkur að hann hélt bara gripinu." „Svo kemur hann inn og það er svakaleg tækni á bak við bragðið sem hann framkvæmdi. Það verður svo sterkt að þetta var eins og að lenda fyrir bíl." Þormóður þekkir vel að glíma við bestu júdómenn heims og það var því ekkert nýtt fyrir honum í dag. „Þessi er til dæmis miklu betri en báðir þeir sem ég mætti í Peking fyrir fjórum árum síðan. Ég var með markmið um að komast í átta manna úrslit en ég á von á því að þessi maður verði í topp fimm á mótinu - þó maður viti aldrei hvað gerist." Þormóður segir að þó svo að átökin hafi verið mikil hafi hann átt meira inni. „Ég var ekki orðinn þreyttur. Hann er bara hraustur og góður maður sem erfitt er að eiga við. Það er engin tilviljun að hann sé númer þrjú í heiminum." Hann segist ekki vita hvað taki við hjá sér. „Nú fer ég heim og tek á móti syni mínum sem á að koma í heiminn hvað á hverju. Ég einbeiti mér að því og svo sjáum við hvað setur."
Tengdar fréttir Þormóður tapaði og er úr leik Þormóður Jónsson hefur lokið keppni á Ólympíuleikunum í London eftir að hafa tapað fyrir Rafael Silva frá Brasilíu í 32-manna úrslitum +100kg flokks. 3. ágúst 2012 08:22 Mest lesið Besta fótboltakona heims lögð inn á sjúkrahús fimm dögum fyrir EM Fótbolti Sjáðu stórkostlegt mark Sveindísar í lokaleiknum fyrir EM Fótbolti Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Körfubolti Níu ár síðan að strákarnir okkar „slökktu á“ Steve McClaren í beinni á Sky Sports Fótbolti Hélt að Arnar væri að djóka í sér: „Maður var í smá sjokki“ Fótbolti Brentford hafnaði tilboði Manchester United Enski boltinn Umdeildur öryggisvörður fær stuðning frá Haaland Fótbolti Olivier Giroud verður liðsfélagi Hákonar Fótbolti Hetja Blika í kvöld lá í viku inn á spítala í janúar með blóðsýkingu Íslenski boltinn Færeyingar töpuðu eftir tvíframlengdan leik Handbolti Fleiri fréttir Leikmenn í enska þurfa nú að fara í viðtal þegar þeir koma af velli Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Sjáðu markaveislu Valsmanna og varamannaþrennu Kristófers bjarga Blikum Hélt að Arnar væri að djóka í sér: „Maður var í smá sjokki“ Besta fótboltakona heims lögð inn á sjúkrahús fimm dögum fyrir EM Olivier Giroud verður liðsfélagi Hákonar Brentford hafnaði tilboði Manchester United Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Umdeildur öryggisvörður fær stuðning frá Haaland Dagskráin: Formúla 1, pílukast í Bandaríkjunum og tvö golfmót Hetja Blika í kvöld lá í viku inn á spítala í janúar með blóðsýkingu Níu ár síðan að strákarnir okkar „slökktu á“ Steve McClaren í beinni á Sky Sports Hetja Blika með þrennu af bekknum: „Allir jafn mikilvægir“ Svarar ekki Óskari Hrafni: „Ég tala bara úti á velli, ekki eftir á“ Færeyingar töpuðu eftir tvíframlengdan leik ÍR-ingar gefa ekkert eftir og tóku toppsætið aftur af Njarðvík Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 1-4 | Kristófer með þrennu á móti uppeldisfélaginu Uppgjörið: KA-Valur 2-5 | Valsmenn með annan stórsigurinn í röð Sjáðu stórkostlegt mark Sveindísar í lokaleiknum fyrir EM Önnur góð Reykjavíkurferð hjá Þórsurum Liverpool semur við fyrrum liðsfélaga Stefáns Teits David Beckham lagður inn á sjúkrahús Eva Margrét sjöunda á EM Heldur ekki áfram með Leicester Uppgjörið: Serbía - Ísland 1-3 | Allt klappað og klárt fyrir EM Glódís byrjar gegn Serbum á þrjátíu ára afmælisdegi sínum Sjáðu ótrúlegt slysamark gegn fyrstu mótherjum Íslands á EM Obbekjær hentaði Blikum ekki og fer aftur til Færeyja Forsetabikarinn rann Íslandi úr greipum Liðsfélagi hjá AGF sannfærði Mikael um að semja við Djurgården Sjá meira
Þormóður tapaði og er úr leik Þormóður Jónsson hefur lokið keppni á Ólympíuleikunum í London eftir að hafa tapað fyrir Rafael Silva frá Brasilíu í 32-manna úrslitum +100kg flokks. 3. ágúst 2012 08:22