Sport

Glæsilegt Íslandsmet hjá Eygló | Ísland endaði í 15. sæti

Íslenska boðsundsveitin.
Íslenska boðsundsveitin.
Eygló Ósk Gústafsdóttir setti glæsilegt Íslandsmet í 100 metra baksundi rétt í þessu á Ólympíuleikunum í London þar sem hún synti fyrsta sprettinn fyrir boðsundsveit Íslands í 4x100 m. fjórsundi. Eygló synti á 1:01,74 mín., en Íslandsmet hennar var 1:02,20 mín. Íslenska sveitin endaði í 15. sæti af alls 16 þjóðum sem tóku þátt á tímanum 4:07,09 mín. Þær voru aðeins 4/10 úr sekúndu frá Íslandsmetinu.

Sundið var sögulegt þar sem að Ísland hefur aldrei áður átt boðsundsveit á ÓL. Eygló synti fyrsta sprettinn, Hrafnhildur Lúthersdóttir synti bringusundið, Sarah Blake Bateman tók flugsundssprettinn og Eva Hannesdóttir synti skriðsundið.

Ástralía náði besta tímanum í undanrásunum, 3:55,42 mín, en heimsmetið er 3:52,19 mín og er það í eigu Kínverja frá HM í Róm árið 2009.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×