Sport

Sarah Blake komst ekki í undanúrslit | Rangur tími skráður?

Sarah Blake Bateman.
Sarah Blake Bateman. Valli
Sarah Blake Bateman komst ekki í 16 manna úrslit í 50 metra skriðsundi kvenna á Ólympíuleikunum í London. Sarah kom þriðja í mark þar sem að þrjár sundkonur kepptu um laust sæti í undanúrslitum. Þær voru allar jafnar á 22,28 sek eftir riðlakeppnina í 16.-18. sæti.

Amy Smith frá Bretlandi kom fyrst í mark á 24,84 sek., Kara Lynn Joyce frá Bandaríkjunum varð önnur á 25,16 sek., og Sarah var nokkuð frá sínu besta á 26,03 sek. Íslandsmet hennar er 22,24 sek.

Sarah keppti aðeins 20 mínútum áður með boðsundsveit Íslands í 4x100 metra fjórsundi.

Uppfært 11.39: Eftir sundið sagðist Sarah Blake telja að rangur tími hafi verið skráður á hana í sundinu. Hún hafi því ekki komið í mark á 26,03 - sem er þó uppgefinn tími hennar í aukasundinu.

„Ég veit að ég vann ekki riðilinn en ég fór ekki svona hægt heldur," sagði hún. Á sjónvarpsupptöku má sjá að hún kom í mark á mjög svipuðum tíma og hin bandaríska Kara Lynn Joyce en tíminn hennar var 25,16 sekúndur.

„Klukkan var ekki stöðvuð á réttu augnabliki," bætti hún við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×