Sport

Eygló: Himinlifandi með metið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Mynd/Valli
Eygló Ósk Gústafsdóttir náði að bæta Íslandsmet sitt í 100 m baksundi í morgun þegar hún synti í 4x100 m fjórsundi með boðsundssveit Íslands á Ólympíuleikunum í morgun.

Eygló synti á 1:01,74 mínútum en gamla metið var 1:02,33 sem hún setti á Íslandsmeistarmótinu í apríl síðastliðnum. Hún var aðeins 0,07 sekúndum frá metinu þegar hún keppti í 100 m baksundi á sunnudaginn en nú féll metið.

„Ég náði Íslandsmeti og bætti minn besta tíma. Ég er himinlifandi með það," sagði Eygló eftir boðsundið í morgun.

„Allt stressið fór úr mér eftir 200 m baksundið í gær og var ég ekkert stressuð fyrir þetta sund. Ég var frekar spennt og vildi hafa gaman af þessu með stelpunum."

Hún hefur nú lokið keppni á leikunum en alls keppti hún í fjórum greinum í London. „Ég er svakalega ánægð. Þetta var ótrúlega skemmtilegasta upplifun lífs míns hingað til."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×