Sport

Hrafnhildur: Tek þetta bara í Ríó

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Valli
Hrafnhildur Lúthersdóttir var ánægð með tímann sinn í boðsundinu í morgun en hún tók bringusundssprett íslenska liðsins.

Hrafnhildur synti á 1:09,19 mínútum og segist hún ekki hafa von á því að komast undir eina mínútu og tíu sekúndur. Íslandsmet hennar er 1:09,68 en tími hennar í dag er ekki gildur sem Íslandsmet þar sem um boðsundssprett er að ræða.

Aðeins er hægt að bæta Íslandsmet í fyrsta spretti boðsundsins og er það baksund. Eygló Ósk Gústafsdóttir bætti einmitt Íslandsmetið í 100 m baksundi í boðsundinu nú í morgun.

„Ég gaf allt í þetta enda gaman að fá að taka þátt í boðsundi. Adrenalínið er á fullu allan tímann."

Hrafnhildur hefur ekki verið upp á sitt besta þar sem hún meiddist skömmu fyrir leikana. Hún keppti í 200 m bringusundi fyrr í vikunni en segir að meiðslin hafi ekki versnað við það.

„Ég fann ekkert fyrir meiðslunum á meðan ég var að synda en svo fann ég verk um leið og ég kom í bakkann. En strax næsta dag var ég orðin góð á ný."

Hrafnhildur hafði átt mjög gott tímabil fram að meiðslunum og bætt sig mikið í sínum sterkustu greinum. Hún neitar því ekki að það skuli vera svekkjandi að meiðslin hafi sett strik í reikninginn.

„Jú, auðvitað. En ég hef núna sett mér það markmið að gera bara enn betur á leikunum árið 2016. Ég ætla að taka þetta allt saman í Ríó," sagði hún.


Tengdar fréttir

Glæsilegt Íslandsmet hjá Eygló | Ísland endaði í 15. sæti

Eygló Ósk Gústafsdóttir setti glæsilegt Íslandsmet í 100 metra baksundi rétt í þessu á Ólympíuleikunum í London þar sem hún synti fyrsta sprettinn fyrir boðsundsveit Íslands í 4x100 m. fjórsundi. Eygló synti á 1:01,74 mín., en Íslandsmet hennar var 1:02,20 mín. Íslenska sveitin endaði í 15. sæti af alls 16 þjóðum sem tóku þátt á tímanum 4:07,09 mín. Þær voru aðeins 4/10 úr sekúndu frá Íslandsmetinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×