Sport

Williams-systur heimsóttu íslensku keppendurna

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Tennisstjörnurnar Venus og Serena Williams litu við í vistarverum íslenska keppnisliðsins í Ólympíuþorpinu í gær.

Þær systur höfðu áhuga að fá nælu frá ÍSÍ sem þær vantaði í safnið sitt. Fengu þeir eina slíka frá sundkonunni Evu Hannesdóttur sem fékk aðra í staðinn frá bandaríska tennissambandinu.

Serena Williams bar sigur úr býtum á Wimbledon-mótinu á dögunum og þær systur unnu sömuleiðis í tvíliðaleik kvenna. Keppt er einnig á Wimbledon-keppnissvæðinu hér á Ólympíuleikunum og þykja þær sigurstranglegar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×