Guðni hlakkar til að sjá Gylfa spila Jón Hákon Halldórsson skrifar 4. júlí 2012 12:43 Guðni Bergsson er fyrrverandi leikmaður Tottenham. mynd/ hari.
Guðni Bergsson, lögfræðingur og fyrrverandi knattspyrnumaður hjá enska liðinu Tottenham, hlakkar til að sjá Gylfa Sigurðsson spila með liðinu. Eins og greint var frá í dag er Gylfi búinn að semja við liðið. Guðni hefur fylgst með Tottenham undanfarin ár og telur að Gylfi eigi góða möguleika á að láta ljós sitt skína. „Bæði miðað við leikstíl liðsins og svo geri ég líka ráð fyrir að nýr framkvæmdastjóri hafi lagt hart að honum að koma til Tottenham því að hann virtist nú hafa átt möguleika á að fara víða annað, meðal annars til Liverpool," segir Guðni. Hann býst við því að Gylfi sé mjög framarlega í plönum hjá Andre Villas-Boas, nýjum framkvæmdastjóra liðsins. „Og maður vonar þá að honum gangi sem best hjá nýju Tottenham liði," segir Guðni. Guðni vill ekki vera með miklar vangaveltur um það hví Gylfi hafi ákveðið að fara til Tottenham, frekar en Liverpool. „Gylfi mun nú mögulega tjá sig eitthvað um það," segir hann. „Maður veit nú ekki hvernig tilboð Liverpool hefur verið tilbúið til þess að gera bæði til Hoffenheim og þá líka til Gylfa eða hvað hefur farið fram milli hans og framkvæmdastjóranna," bætir Guðni við. Hann bætir því við að það sé lykilatriði að Gylfi fái að spila sem mest með Tottenham og fái að njóta sín og býst við að Gylfi sé með mikið sjálfstraust til að láta til sín taka hjá sterku liði. „Hann metur það ábyggilega svo að það sé lykilatriði fyrir hann að fá að spila sem mest," segir Guðni.
Mest lesið Íslenskur doktorsnemi Englandsmeistari: Rannsakar prótín og skorar af línunni í Oxford Sport Lokaumferðin í enska: Newcastle hélt Meistaradeildarsætinu Enski boltinn Aron Pálmarsson leggur skóna á hilluna í sumar Handbolti Uppgjörið: FH - Breiðablik 2-0 | Kraftmiklir Hafnfirðingar kafsigldu Blika Íslenski boltinn Sjáðu mörkin úr endurkomu Vestra og þrumufleyg Hallgríms Íslenski boltinn Uppgjörið: FHL - Þróttur 0-4 | Þróttarar á toppinn eftir stórsigur fyrir austan Íslenski boltinn Aron Einar tók þátt í að binda endi á langa bikarbið Al-Gharafa Fótbolti Bjartari tímar framundan á Old Trafford að sögn Amorim Fótbolti Bastarður ráðinn til starfa Fótbolti Ítalíumeistararnir að landa De Bruyne Fótbolti Fleiri fréttir Lokaumferðin í enska: Newcastle hélt Meistaradeildarsætinu Garnacho ekki í hóp Ætlar að biðja stuðningsmennina afsökunar eftir lokaleikinn Sunderland vann milljónaleikinn og komst upp í úrvalsdeildina Salah bestur og Gravenberch besti ungi Forest bannaði Neville að mæta á völlinn Gæti hætt við að fara til Man Utd eftir tapið gegn Tottenham Klopp snýr aftur á Anfield Reka 200 manns eftir tapið fyrir Tottenham Fyrrverandi leikmaður Man. Utd hlaut fjórtán mánaða dóm Var ekki nógu ánægður með Trent Toney í enska hópnum en enginn úr Man. Utd Starf Amorims öruggt Höfnuðu í þriðja sæti en urðu samt meistarar Fernandes tilbúinn að fara ef United vill græða á honum Flestir vonast eftir sigri Spurs í kvöld Kona Calvert-Lewin varð fyrir barðinu á netníðingum Guardiola hótar að hætta „Manchester er heima“ Rómverjar vilja Nuno sem gæti verið ósáttur í Skírisskógi De Bruyne kvaddur með stæl Frimpong í læknisskoðun hjá Liverpool og Kerkez í launaviðræðum Beckham varar Manchester United við Hinselwood hetja Brighton gegn meisturunum Cunha að ganga í raðir Man United Hættir á BBC strax á sunnudaginn: „Ég geri mér grein fyrir uppnáminu sem ég olli“ Glæsimark Rice gulltryggði Arsenal Meistaradeildarsæti Draumaendir hjá Vardy í kveðjuleiknum Chelsea vann á Wembley og fullkomnaði þrennuna Stórkostleg stemning og sætur sigur í síðasta leiknum í Guttagarði Sjá meira