M.I.A. gaf Bandaríkjamönnum fingurinn - NBC biðst afsökunar 6. febrúar 2012 10:18 Atvikið umdeilda.
Forsvarsmenn NBC hafa beðist afsökunar á því að hafa ekki verið nógu snöggir að hylja miðfingur söngkonunnar M.I.A. sem rappaði í lagi Madonnu, Give Me All Your Luvin, í auglýsingahléinu á Ofurskálinni síðastliðna nótt. Einhverjum Bandaríkjamönnum var verulega brugðið eftir að breska tónlistarkonan M.I.A. gaf áhorfendum fingurinn auk þess sem hún sagði í texta sínum að henni væri skítsama. Eða: „I don´t give a shit". Þetta fór verulega fyrir brjóstið á áhorfendum, allavega miðað við viðbrögð NBC sjónvarpstöðarinnar. Þeir reyndu að vísu að hylja fingurinn en voru of seinir. Á vef The Daily Mail segir að tæknilegir örðugleikar hefðu leitt til þess að fingurinn fékk að njóta sín í beinni. Sumir Bandaríkjamenn eru líklega ekki enn búnir að jafna sig á hneykslinu þegar Janet Jackson flaggaði geirvörtunni í beinni árið 2004 þegar hún tók lagið ásamt Justin Timberlake. Því voru þeir nokkuð viðkvæmir fyrir fingrinum. Ekki er ljóst hvort M.I.A. taki atvikið nærri sér. Sjálf er hún rammpólitísk í list sinni og hefur oft verið gagnrýnd fyrir. Þá ólst hún meðal annars upp í norðu-hluta Sri Lanka þar sem Tamíl tígrar réðu lögum og lofum á tíunda áratugnum. Faðir hennar var pólitískur andófsmaður sem barðist fyrir aðskilnaði Sri Lanka og tamíla en fjölskyldan þurfti meðal annars að fara í felur vegna stjórnarhers Sri Lanka. Hún virðist því ekki kalla allt ömmu sína. M.I.A. var hinsvegar að gefa út nýtt lag og má sjá myndbandið hér. Hún er vel þekkt í Bretlandi og víðar og sló í gegn á heimsvísu þegar tónlist hennar var notuð í kvikmyndinni Slumdog Millionare.
Tengdar fréttir Madonna gerði allt vitlaust á Super Bowl Super Bowl leikurinn fór fram í nótt en þar er um að ræða einn stærsta íþróttaviðburð sem fram fer í Bandaríkjunum ár hvert. Tónlistaratriðin í hálfleik eru yfirleitt í glæsilegri kantinum og í gegnum tíðina hafa flestar skærustu poppstjörnur heims komið fram á leiknum. 6. febrúar 2012 10:02 Mest lesið Björk og Yara nýtt par Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Innipúkunum fjölgar enn Tónlist Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Sjá meira
Madonna gerði allt vitlaust á Super Bowl Super Bowl leikurinn fór fram í nótt en þar er um að ræða einn stærsta íþróttaviðburð sem fram fer í Bandaríkjunum ár hvert. Tónlistaratriðin í hálfleik eru yfirleitt í glæsilegri kantinum og í gegnum tíðina hafa flestar skærustu poppstjörnur heims komið fram á leiknum. 6. febrúar 2012 10:02