Yfir þrettán þúsund í fyrsta sinn 20. ágúst 2012 00:00 Það var nóg af fólki í Lækjargötunni þegar hlaupararnir voru ræstir af stað í 29. Reykjavíkurmaraþonið á laugardaginn en það var enginn þeirra svikinn af því að spretta úr spori í blíðunni. Fréttablaðið/daníel
Reykjavíkur-maraþon Íslandsbanka tókst frábærlega og aldrei hafa fleiri verið með en í blíðunni á laugardaginn. Alls sprettu 13.410 hlauparar úr spori í sex vegalengdum eða tæplega þúsund fleiri en þegar gamla metið var sett í fyrra. Metþátttaka var einnig í öllum fjórum keppnisvegalengdunum; maraþoni (806), hálfmaraþoni (2004), í 10 km hlaupi (5.177) og í boðhlaupum (118). Í þriggja kílómetra skemmtiskokki voru skráðir 1.928 og í Latabæjarhlaup voru skráð til leiks 3.377 börn. Arnar Pétursson varði Íslandsmeistaratitil sinn þegar hann sigraði í maraþoni karla annað árið í röð. Tími Arnars í ár var 2:41:06 klukkutímar og bætti hann tíma sinn frá því í fyrra um rúmar þrjár mínútur. Arnar hafði betur eftir harða keppni við Pólverjann Piotr Karolczak. Sigurvegari í maraþoni kvenna var Mary Brown en hún hljóp á tímanum 3:04:03. Íslandsmeistari í maraþoni í kvennaflokki varð aftur á móti Sigríður Björg Einarsdóttir sem kom í mark á tímanum 3:25:46. Í hálfmaraþoni sigraði Þorbergur Ingi Jónsson þegar hann kom í mark á tímanum 1:09:23. Þorbergur sigraði einnig í Reykjavíkurmaraþoninu í fyrra en þá í 10 km hlaupinu. Í kvennaflokki sigraði Martha Ernstdóttir á tímanum 1:23:00 en hún á brautarmetið í hálfmaraþoni, 1:11:40, sem hún setti árið 1996. Tími Mörthu í dag er sá næstbesti í hennar aldursflokki, 40-49 ára, en besta tímann í þeim flokki á Martha einnig, 1:20:12 síðan 2005. Sigurvegarar í 10 km hlaupinu voru þau Fríða Rún Þórðar dóttir og Björn Margeirsson sem einnig voru krýndir sigurvegarar í mótaröð Powerade-sumarhlaupanna en Reykjavíkurmaraþonið var fimmta og síðasta hlaupið í mótaröðinni þetta sumarið. Í boðhlaupinu sigraði liðið Sveittir og þreyttir en það skipa þeir Óskar Ragnar Jakobsson, Daníel Jakobsson, Bergþór Ólafsson og Jósep Magnússon. Þetta er í þriðja sinn sem þessir félagar sigra í boðhlaupinu og hafa þeir bætt tíma sinn um tæpar fimm mínútur síðan í fyrra, en samanlagður tími þeirra í ár var 2:42:42.
Mest lesið Karólína Lea á bólakaf í kalda pottinum Fótbolti Þóra um hártogið í Bestu: „Þetta er bara botnhegðun“ Íslenski boltinn Slógu saman heimsmetið í bakgarðshlaupum Sport Neymar hlustaði á hjartað sitt Fótbolti Bayern gæti þurft að fara svakalega leið að titlinum Fótbolti Reynir við áttunda heimsmeistaratitil sinn Sport Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Körfubolti Missti typpið út úr buxunum en náði samt besta tíma ársins Sport Komin með hundrað meistaraflokksleiki fyrir nítján ára afmælið sitt Íslenski boltinn Næstum því allt gekk upp hjá íslenska liðinu Sport Fleiri fréttir Þóra um hártogið í Bestu: „Þetta er bara botnhegðun“ Neymar hlustaði á hjartað sitt Reynir við áttunda heimsmeistaratitil sinn Bayern gæti þurft að fara svakalega leið að titlinum Karólína Lea á bólakaf í kalda pottinum Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Komin með hundrað meistaraflokksleiki fyrir nítján ára afmælið sitt Slógu saman heimsmetið í bakgarðshlaupum Búið að breyta reglunni um víti sem grætti Atlético-menn Næstum því allt gekk upp hjá íslenska liðinu Liverpool strákurinn hetjan þegar Englendingar fóru í úrslitaleikinn Sveinn Aron skoraði í vítakeppninni þegar Sarpsborg fór í undanúrslit Íslendingaliðið stóð í toppliðinu úr deildinni fyrir ofan Luka Modric fer til AC Milan eftir HM félagsliða Norðmenn græddu á því að halda HM í handbolta Lallana leggur skóna á hilluna Ronaldo að semja á ný við Al-Nassr Sjáðu Irmu bæta eigið Íslandsmet í þrístökki Kraftaverk Færeyinga: „Þurfum alla leikmenn sem við getum fengið“ Svekkjandi tap eftir misheppnaða sendingu Landsliðshóparnir valdir fyrir Evrópumótin í golfi Eir Chang sló Íslandsmet liðsfélaga síns og Ísland vann 3. deildina John Andrews um uppsögnina: „Kom mér mjög á óvart“ Barcelona snýr loks aftur á Nývang en ekki að fullu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Meidd og mætir Íslandi ekki á EM: „Áfall fyrir Noreg“ Fjalla um stórt tap mótherja Íslands í leynileik við U15-strákalið Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Lyon mun áfrýja og Crystal Palace í óvissu Átti fullkomið hlaup fyrir aftan nöfnu sína frá Moldóvu Sjá meira