Latibær á 100 milljón heimilum 21. september 2012 13:00 Magnús Scheving og félagar í Latabæ eru að hasla sér völl í Bandaríkjunum. fréttablaðið/anton „
Þetta er algjörlega frábært,“ segir Guðmundur Magnason hjá Latabæ. Latibær er kominn inn á nánast hvert einasta heimili í Bandaríkjunum, eða rúmlega hundrað milljónir heimila, í gegnum sjónvarpsrisann NBC. Þættirnir eru sýndir á stöðinni NBC Kids á hverjum laugardagsmorgni. Þeir eru einnig sýndir tvisvar á dag á barnastöðinni Sprout, sem nær til um fjörutíu milljóna heimila, og á spænskumælandi stöðinni Telemundo tvisvar í viku. Að sögn Guðmundar er eftir miklu að slægjast á Bandaríkjamarkaði varðandi sölu á Latabæjar-varningi. Að sama skapi er þetta langerfiðasti markaðurinn að komast á. „Við sömdum við sjónvarpsstöðina PBS Sprout sem er að stærstum hluta í eigu Comcast. Svo kaupir Comcast NBC Universal fyrir nokkru síðan og í framhaldi af því taka þeir við þessari „krakkablokk“ frá NBC,“ segir hann. „Þetta er hluti af stærra plani hjá okkur sem gengur út á að koma Latabæ að með vörur í öllum helstu vöruflokkum. Þangað erum við að fara.“ Til að það takist er allt reynt til að vekja athygli á Latabæ úti um öll Bandaríkin. Sjónvarpið hjálpar þar mikið til en einnig er að fara af stað Latabæjarleikrit, auk þess sem Latabæjarhópur mun kynna vörumerkið með uppákomum í fjörutíu verslunarmiðstöðvum. Auglýsingar íþróttaálfsins með forsetafrúnni Michelle Obama hafa einnig hjálpað mikið til að við vekja athygli á Latabæ vestanhafs. -fb
Mest lesið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Lífið Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Lífið Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Lífið Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Lífið Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Lífið Sassy fagnar 5 ára afmæli og stórum kaflaskiptum Lífið samstarf Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Menning Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Menning Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Lífið Fleiri fréttir Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Sjá meira