Hitler að þakka að stjórnmálamenn mega vera trúðar SB skrifar 18. maí 2011 19:45
Leikstjórinn Benedikt Erlingsson fór mikinn í hlutverki fundarstjóra á fyrirlestrinum Leiklist stjórnmálanna sem haldinn var í Háskólanum í dag. Hann kallaði einræðisherrann Adolf Hitler kollega sinn - enda hafi hann bæði verið leikari og leikstjóri. „Hann var ekki bara leikari og performer heldur kunni hann að sviðsetja sig og var performer og kannski stóru áhrif hans á leikhús stjórnmala, hann hafði áhuga á búningum og öllu, ekki bara arkitektúr. Menn sviðsetja sig ekki lengur dramatískt eins og hann gerði. Það er í lagi að vera trúður," sagði Benedikt sem hefur hlotið fjölda Grímuverðlauna fyrir sýningar sínar. Á fundinum var Besti flokkur Jóns Gnarr mikið ræddur og þeirri spurningu varpað upp hvernig slík leiksýning hefði unnið hug kjósenda. Ólafur Þ. Harðarson, stjórnmálafræðingur sagði þrjá þætti ráða úrslitum kosninga. Félagslegi þátturinn, til dæmis hvaða stétt fólk tilheyrði, flokkshollusta og svo málefni og lífsviðhorf. Ólafur sagði rannsóknir á síðust árum sýna fram á að fyrri tveir þættirnir hefðu sífellt minna vægi. Fólk horfði meira á málefnin en áður. Hann var þá spurður hvernig það rýmaði við það kosningaloforð Besta flokksins að svíkja öll kosningaloforð. „Mín meginskýring á sigri besta flokksins er það var jarðvegur fyrir það. Þetta er fyrst og fremst andófsframboð, við flokkakerfið og við það hrun stjórnmálanna sem hafði átt sér stað á undan," sagði Ólafur en sá sem stal senunni á fundinum var eini atvinnuleikarinn á svæðinu.
Tengdar fréttir Leikrænir tilburðir hafa ekki úrslitaáhrif Leikrænir tilburðir stjórnmálamanna hafa almennt ekki úrslitaáhrif þegar kemur að niðurstöðum kosninga. Þetta segir Ólafur Þ. Harðarson prófessor í stjórnmálafræði. Hann tekur þó fram að leikræn tjáning geti gert herslumuninn þegar tveir flokkar eru í kjöri og mjótt er á mununum. Almennt séð eru það hins vegar þau málefni sem flokkarnir leggja áherslu á og viðhorf kjósenda sem hafa mest að segja um niðurstöður kosninga. Ástæða góðs gengis Besta flokksins í síðustu borgarstjórnarkosningum, er að mati Ólafs sú að í samfélaginu var jarðvegur fyrir framúrstefnulegt framboð. Ólafur var einn þriggja frummælenda á hádegisfundi á vegum EDDU-öndvegisseturs og Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands sem haldinn var í hádeginu. Yfirskrift fundarins var Leiklist stjórnmálanna. "Oft er talað um stjórnmálin sem leiksvið og um stjórnmálamenn sem leikara, en allt frá fornöld hafa leikrænir tilburðir stjórnmálamanna verið stjórnspekingum umhugsunarefni. Þessi leiklist stjórnmálanna spannar vítt svið sem nær allt frá lýðskrumi og ímyndarsköpun til dramatískra tilburða stjórnmálaleiðtoga til að höfða til almennings á ögurstund," sagði í fundarboði. Nasistar komust til valda í Þýskalandi á sínum tíma því þjóðfélagið var móttækilegt fyrir þjóðernissinnuðum og afgerandi flokki. Stjórnunarstíll Hitlers einkenndist síðan af leikrænum tilburðum og má í raun segja að hann hafi sett á svið heilu leiksýningarnar fyrir almenning í því skyni að upphefja hann sjálfan og nasismann. Þar fléttuðust því saman leiklist og pólitík áhrifaríkan hátt. Á hádegisfundinum var komið inn á feril leikara sem síðar sneru sér að pólitík, svo sem Ronalds Reagan, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og Arnold Schwarznegger, fyrrverandi ríkisstjóra í Kaliforníu. Þá er Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, þekktasta dæmið út íslenskri pólitík. Hann hefur markvisst beitt aðferðum trúðsins í bæði kosningabaráttu og starfi sem borgarstjóri. Jón hefur einnig farið í hlutverk einlæga einfeldningsins, sem viðurkennir strax þegar hann veit ekki um hvað málið snýst, en á auðvelt með að nýta persónutöfrana þegar á þarf að halda. Kosningabarátta Besta flokksins var í raun eitt stórt leikrit. Flokkurinn var ekki með skýra málefnaskrá og hefur gert velflest það, eftir að hann komst til valda, sem hinir hefðbundnu flokkar hefðu gert, svo sem að hækka útsvar og segja upp starfsfólki í sparnaðarskyni. Fylgi flokksins hefur nokkuð minnkað frá kjöri. Í borgarstjórnarkosningunum vorið 2010 fékk Bestu flokkurinn rúm 34% atkvæða en nú mælist fylgi flokksins um 20%. Á fundinum var því velt upp hvort hugmyndin um Besta flokkinn væru ekki misheppnuð út af þessu fylgistapi. Ólafur benti á að það væri alsiða að flokkar sem eru við stjórnvölinn tapi fylgi þegar aðstæður í þjóðfélaginu krefjist þess að óvinsælar ákvarðanir séu teknar. Ólafur sagði því í raun tíðindum sæta að fall flokksins væri ekki meira. 18. maí 2011 15:50 Mest lesið Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Erlent Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Innlent Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Erlent Fjórar hákarlaárásir á aðeins 48 klukkustundum Erlent Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Innlent Flughált í höfuðborginni og víðar um land Innlent Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Innlent Deilt um verðhækkanir Veitna Innlent Fleiri fréttir Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Sandra tekin við af Guðbrandi Flughált í höfuðborginni og víðar um land Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Sjá meira
Leikrænir tilburðir hafa ekki úrslitaáhrif Leikrænir tilburðir stjórnmálamanna hafa almennt ekki úrslitaáhrif þegar kemur að niðurstöðum kosninga. Þetta segir Ólafur Þ. Harðarson prófessor í stjórnmálafræði. Hann tekur þó fram að leikræn tjáning geti gert herslumuninn þegar tveir flokkar eru í kjöri og mjótt er á mununum. Almennt séð eru það hins vegar þau málefni sem flokkarnir leggja áherslu á og viðhorf kjósenda sem hafa mest að segja um niðurstöður kosninga. Ástæða góðs gengis Besta flokksins í síðustu borgarstjórnarkosningum, er að mati Ólafs sú að í samfélaginu var jarðvegur fyrir framúrstefnulegt framboð. Ólafur var einn þriggja frummælenda á hádegisfundi á vegum EDDU-öndvegisseturs og Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands sem haldinn var í hádeginu. Yfirskrift fundarins var Leiklist stjórnmálanna. "Oft er talað um stjórnmálin sem leiksvið og um stjórnmálamenn sem leikara, en allt frá fornöld hafa leikrænir tilburðir stjórnmálamanna verið stjórnspekingum umhugsunarefni. Þessi leiklist stjórnmálanna spannar vítt svið sem nær allt frá lýðskrumi og ímyndarsköpun til dramatískra tilburða stjórnmálaleiðtoga til að höfða til almennings á ögurstund," sagði í fundarboði. Nasistar komust til valda í Þýskalandi á sínum tíma því þjóðfélagið var móttækilegt fyrir þjóðernissinnuðum og afgerandi flokki. Stjórnunarstíll Hitlers einkenndist síðan af leikrænum tilburðum og má í raun segja að hann hafi sett á svið heilu leiksýningarnar fyrir almenning í því skyni að upphefja hann sjálfan og nasismann. Þar fléttuðust því saman leiklist og pólitík áhrifaríkan hátt. Á hádegisfundinum var komið inn á feril leikara sem síðar sneru sér að pólitík, svo sem Ronalds Reagan, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og Arnold Schwarznegger, fyrrverandi ríkisstjóra í Kaliforníu. Þá er Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, þekktasta dæmið út íslenskri pólitík. Hann hefur markvisst beitt aðferðum trúðsins í bæði kosningabaráttu og starfi sem borgarstjóri. Jón hefur einnig farið í hlutverk einlæga einfeldningsins, sem viðurkennir strax þegar hann veit ekki um hvað málið snýst, en á auðvelt með að nýta persónutöfrana þegar á þarf að halda. Kosningabarátta Besta flokksins var í raun eitt stórt leikrit. Flokkurinn var ekki með skýra málefnaskrá og hefur gert velflest það, eftir að hann komst til valda, sem hinir hefðbundnu flokkar hefðu gert, svo sem að hækka útsvar og segja upp starfsfólki í sparnaðarskyni. Fylgi flokksins hefur nokkuð minnkað frá kjöri. Í borgarstjórnarkosningunum vorið 2010 fékk Bestu flokkurinn rúm 34% atkvæða en nú mælist fylgi flokksins um 20%. Á fundinum var því velt upp hvort hugmyndin um Besta flokkinn væru ekki misheppnuð út af þessu fylgistapi. Ólafur benti á að það væri alsiða að flokkar sem eru við stjórnvölinn tapi fylgi þegar aðstæður í þjóðfélaginu krefjist þess að óvinsælar ákvarðanir séu teknar. Ólafur sagði því í raun tíðindum sæta að fall flokksins væri ekki meira. 18. maí 2011 15:50