Innlent

Prýðilegur leiðarvísir

Finnur Oddsson.
Finnur Oddsson. Mynd/Vilhelm
Ísland hefur fallið niður um 27 sæti á lista yfir samkeppnishæfni þjóða frá árinu 2006. Niðurstöðurnar staðfesta að hér ríkir efnahagsleg stöðnun segir framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.

Ísland er í 31. sæti af tæplega 60 þjóðum varðandi samkeppnishæfni hagkerfa samkvæmt nýútkominni skýrslu svissneska viðskiptaháskólans IMD. Efnahagsleg frammistaða Íslands þykir slök og þá sérstaklega þegar horft er til efnahagsástands innanlands þar sem landið vermir neðsta sætið. Skilvirkni hins opinbera og atvinnulífsins þykir einnig léleg í samanburði við önnur lönd en þar má helst finna veikleika í fjármálum ríkisins, umgjörð stofnana og fjármögnun.

Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, segir samskeppnishæfni landsins hafa staðið í stað en Ísland hefur fallið um eitt sæti á listanum frá síðasta ári. „Það sem þessar niðurstöður staðfesta er að hér ríkir efnahagsleg stöðnun. Við erum ekki að hliðrast niður á við og ekkert að hliðrast upp á við að neinu ráði.“

„Þessi úttekt er prýðilegur leiðarvísir fyrir það sem við þurfum að gera til að bæta hér samfélagsstöðu, efnahagslega frammistöðu og að sjálfsögðu lífskjör,“ segir Finnur.

Hong Kong og Bandaríkin sitja jöfn í efsta sæti listans og eru Norðurlöndin, að Íslandi frátöldu, á meðal 15 samkeppnishæfustu þjóða heims. Ísland fær hins vegar svipaða einkunn og lönd á borð við Tæland, Indland, Pólland og Kasakstan. Það sem skilur þó íslenska hagkerfið frá hagkerfum þessara þjóða eru samfélagslegir innviðir landsins sem þykja með þeim bestu í heimi. Samfélagslegu innviðirnir taka tillit til heilsu, menntamála og grunninnviða, svo sem aðgengi að vatni, vegakerfi og rafmagni.

Finnur segir Íslendinga þess vegna hafa alla burði til að vinna sig hratt út úr efnahagsvandræðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×