Lífið

Kate týndi hringnum á Glastonbury

Kate Kate Moss týndi trúlofunarhring sínum á Glastonbury og lét vini síni vaða drulluna í leit að honum. Hringurinn fannst síðan í bakpoka hennar.
Kate Kate Moss týndi trúlofunarhring sínum á Glastonbury og lét vini síni vaða drulluna í leit að honum. Hringurinn fannst síðan í bakpoka hennar.
Kate Moss týndi trúlofunarhring sínum á Glastonbury-hátíðinni um helgina. Fyrirsætan var stödd á tónleikum The Kills þegar hún uppgötvaði að hringurinn var horfinn, en kærasti hennar, Jamie Hince, er gítarleikari hljómsveitarinnar.

Mikil dramatík skapaðist í kringum Kate þegar hún uppgötvaði að hringurinn væri horfinn. „Það fóru allir að leita að hringnum og Kate var farin að ofanda við hliðina á sviðinu. Hún var gargandi á vini sína og bað um að allir sökktu sér í drullusvaðið og leituðu að hringnum,“ sagði innanbúðarmaður við dagblaðið The Daily News. Kate til mikillar gleði fannst hringurinn stuttu síðar.

„Tveimur klukkustundum eftir að hún tapaði hringnum fór hún grátandi á klósettið og hóf að gramsa í bakpoka sínum þegar hún skyndilega fann hringinn. Hann hafði verið þar allan tímann.“

Innanbúðarmaðurinn bætti því við að Kate hefði hlegið mikið að atvikinu en drullugum vinum hennar hefði ekki þótt þetta jafn skemmtilegt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.