Gagnrýna að ríki styðji Sea Shepherd 13. júlí 2011 04:00 Tómas H. Heiðar
Bretar hafa legið undir ámæli frá fulltrúum ýmissa þróunarríkja á fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins þar sem bresk stjórnvöld létu undir höfuð leggjast að gefa út vegabréfsáritun til fulltrúa nokkurra aðildarríkja í Vestur-Afríku. Gagnrýnt er að fulltrúarnir hafi þannig verið hindraðir í að taka þátt í fundinum, koma sjónarmiðum sínum á framfæri og taka þátt í atkvæðagreiðslu. Tómas H. Heiðar, formaður íslensku sendinefndarinnar, segir að Íslendingar hafi lýst fullri samúð með umræddum þróunarríkjum og lagt áherslu á að vegna þessa óheppilega máls bæri ekki að greiða atkvæði um neinar tillögur á fundinum. Málið er enn óútkljáð. Tómas segir andrúmsloftið í ráðinu hafa batnað mjög frá fundinum í Agadir í fyrra, en þar mistókst að ná málamiðlun milli fylgjenda og andstæðinga hvalveiða. „Undir niðri kraumar hins vegar og lítið má út af bera til að úfar rísi. Á ársfundinum hafa komið upp nokkur mál sem vakið hafa sterkar tilfinningar,“ segir Tómas. Hann vísar þar meðal annars til þess, auk málsins með áritanirnar, að Japan vakti í gær máls á því sem fulltrúi landsins kallaði ofbeldisfullar og lífshættulegar aðgerðir Sea Shepherd-samtakanna gegn japönskum hvalveiðiskipum í Suðurhöfum. Fjölmörg aðildarríki, bæði úr hópi fylgjenda og andstæðinga hvalveiða, fordæmdu aðgerðirnar. „Ísland lagði áherslu á að ekki ætti að beina sjónum að hryðjuverkasamtökunum Sea Shepherd, heldur fremur þeim aðildarríkjum ráðsins sem styddu aðgerðir þeirra beint og óbeint. Gagnrýndi Ísland sérstaklega Holland, þar sem skip samtakanna eru skráð, og Ástralíu, sem veitir skipunum þjónustu í höfnum sínum, fyrir að fullnægja ekki alþjóðlegum skuldbindingum sínum sem fánaríki og hafnríki og styðja með aðgerðarleysi sínu hinar hættulegu aðgerðir umræddra samtaka,“ segir Tómas. Hann segir það hafa vakið athygli hve dregið hafi úr mótmælum gegn hvalveiðum. „Þegar íslenska sendinefndin kom til ársfundarins á mánudag voru aðeins örfáir mótmælendur fyrir utan fundarstaðinn. Við finnum fyrir auknum skilningi á þeim málstað sem við höfum haldið á lofti um réttinn til sjálfbærrar nýtingar lifandi auðlinda hafsins, þar á meðal sjávarspendýra.“ kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Var þetta einhver skets?“ Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Sjá meira