Sex ára höfundur fagnar útgáfu 9. desember 2011 11:00 Bók Ólivers Tuma sem nefnist Óliver Tumi, segðu mér sögu, hefur notið mikilla vinsælda. „
Það er mikill spenningur. Þetta verður mjög gaman,“ segir Auðunn Sólberg Valsson, faðir Ólivers Tuma, yngsta rithöfundar Íslandssögunnar eins og hann hefur verið kallaður. Útgáfuhóf verður haldið í Eymundsson í Austurstræti á laugardaginn í tilefni af útkomu bókarinnar Óliver Tumi, segðu mér sögu. Þar segir hinn sex ára höfundur sögur og ævintýri fyrir börn á öllum aldri. Kátt verður á hjalla í hófinu því jólasveinninn kíkir í heimsókn, Geir Ólafs tekur lagið og Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra og afi Ólivers Tuma, verður veislustjóri. Guðni hefur verið Óliver til halds og trausts við kynningu á bókinni, enda þaulvanur því að koma fram opinberlega. Síðast las Óliver upp úr bókinni í Framsóknarhúsinu við Hverfisgötu ásamt tveimur öðrum rithöfundum og að sjálfsögðu var Guðni þar ásamt barnabarni sínu. Fyrsta upplag bókarinnar nam fimm hundruð eintökum og er það uppselt. Von er á öðru upplagi með þrjú hundruð bókum á næstunni. Einnig er hægt að panta hana hjá foreldrum Ólivers Tuma í síma 895-4455 og í gegnum póstfangið chefausi@gmail.com. „Þetta hefur komið algjörlega á óvart. Þetta átti að vera lítið og sætt verkefni en svo óx þetta einhvern veginn,“ segir Auðunn Sólberg og bætir við að Óliver Tumi sé hæstánægður með gang mála. „Hann er mjög montinn af þessu öllu saman.“ Hluti af söluandvirði bókarinnar rennur til Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, að frumkvæði hins unga höfundar. - fb
Mest lesið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Adda og Alfreð eignuðust dreng Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Fleiri fréttir Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Sjá meira