Drottningarnar mættu á Dill 25. ágúst 2011 08:51
Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar vínframleiðandinn Foss distillery blés til veglegrar veislu á veitingastaðnum Dill í Norræna húsinu á þriðjudaginn var þar sem fyrstu afurðum fyrirtækisins var fagnað en það eru birkilíkjörinn Björk og snafsinn Birkir. Margt var um manninn eins og myndirnar sýna og fengu gestir að bragða ýmsar útfærslur af drykkjunum. Ómar Guðjónsson gítarleikari og Eyjólfur Þorleifsson saxófónleikari fluttu tónlist fyrir veislugesti sem brögðuðu meðal annars á Björk Royale og Björk í tonic, eða B&T, eins og margir gestanna kusu aðkalla það. Birkir Kristinsson fyrrum landsliðsmarkvörður í knattspyrnu og Björk Eiðsdóttir fjölmiðlakona brugðu skemmtilega á leik með nöfnum sínum. Drykkirnir eru afrakstur tilraunastarfsemi Ólafs Arnar Ólafssonar, formanns Vínþjónasamtaka Íslands og Gunnars Karls Gíslasonar fyrirliða íslenska kokkalandsliðsins. Ólafur Örn og Gunnar Karl reka veitingastaðinn Dill í Norræna húsinuog hafa undanfarin ár gert ýmsar tilraunir með eiginleika íslenska birkisins í eldhúsinu á Dill. „Mig langaði að fanga upplifunina af íslenskri vornótt, augnablikið þegar það er nýstytt upp og döggin sest á birkivaxna hlíðina. Ég held að Björk og Birkir komist ansi nálægt því," segir Ólafur. Ólafur og Gunnar Karl eru frumkvöðlar í nýnorrænni matargerðarlist á Íslandi en möguleikar íslenskra náttúruafurða eru þeirra hjartans mál. Ásamt Ólafi og Gunnari Karli standa að verkefninu feðginin Jakob Svanur Bjarnason mjólkurfræðingur og Elsa María Jakobsdóttir félagsfræðingur og fyrrum fjölmiðlakona. Birkir og Björk verða á næstu dögum fáanleg á veitingastöðum og skemmtistöðum. Auk þess verður hægt að fá drykkina í vínbúðum og fríhöfn.
Mest lesið „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Lífið Josh Grisetti látinn 44 ára að aldri Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Lífið „Við unnum í nágrannalottóinu“ Lífið Leikarinn Sam Neill er látinn Lífið Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Tíska og hönnun „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ Lífið Steiney frumsýnir kærastann Lífið „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Lífið Fleiri fréttir „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Sjá meira