Framtíðin er runnin upp 27. nóvember 2011 22:00 Arnþór Snær Sævarsson og Eldar Ástþórsson stjórnuðu Skýjum ofar. Mynd/Valgarður
Í tilefni þess að fimmtán ár eru liðin frá því að danstónlistarþátturinn Skýjum ofar hóf göngu sína á X-inu verður efnt til afmælistónleika 17. desember á Barböru við Laugaveg, þar sem áður var skemmtistaðurinn 22. Þátturinn var í loftinu í fimm ár og lauk göngu sinni á Rás 2. Arnþór Snær Sævarsson stjórnaði Skýjum ofar ásamt Eldari Ástþórssyni og saman ætla þeir að spila jungle- og drum&bass-tónlist eftir Goldie, Roni Size, Squarepusher og fleiri. Þeir héldu á sínum tíma Skýjum ofar-kvöld á 22 þar sem stemningin var jafnan mikil og dansinn dunaði. „Þegar við vorum á 22 var farið að hafa áhyggjur af því að gólfið væri að brotna undan dansóðum Skýjum ofar-hópnum því það dúaði svo mikið,“ segir Arnþór Snær en núna er búið að laga gólfið. „Það þýðir að við getum pakkað staðinn án þess að hafa áhyggjur.“ Tónlistin sem þeir spiluðu þótti nokkuð framúrstefnuleg. „Ef eitthvað er að marka það sem hefur verið að gerast í popptónlist síðustu árin heyrir maður alltaf endalausar tilvísanir í áhrif drum&bass-stefnunnar. Þessi tónlist er ekki alveg jafnmikið á jaðrinum og hún var,“ segir Arnþór. „Við vildum alltaf meina að þessi tónlist væri aðeins í framtíðinni en síðan er bara framtíðin komin. Það má segja að þetta sé tónlist samtímans núna.“ Þeir eru báðir orðnir feður í dag og ábyrgðarfyllri einstaklingar. Þrátt fyrir það eru þeir ennþá með danstaktinn í blóðinu. „Maður breytist aldrei sjálfur, bara hlutirnir í kringum mann.“ Hópur plötusnúða sem spilaði í þættinum stígur einnig á svið 17. desember. Sömuleiðis verður Skýjum ofar-þáttur á X-inu sama kvöld. Afmælið legggst að vonum vel í Eldar. „Það verður skemmtilegt að rifja upp gamla tíma. Það er mikill hugur í okkur og maður heyrir í kringum sig að fólk er búið að bíða eftir þessu.“ freyr@frettabladid.is
Mest lesið Allir komust lifandi út – nema Beethoven Gagnrýni „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið „Við erum öll nóg“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið KK átti salinn - en tónlistin varð útundan Gagnrýni Innistæðulaus stjörnudýrkun: Plácido Domingo hefði betur setið heima Gagnrýni Fleiri fréttir „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Er ástin blind? Eru konur ástsjúkari en karlar? Kom gríðarlega stórum hlut í gegnum kleinuhring án þess að skemma hann Sjá meira