Vill hanga í himninum 25. maí 2011 16:00 Áslaug Rán Einarsdóttir og Aníta Hafdís Björnsdóttir ferðbúnar á leið frá Balí í Indónesíu með vængina á bakinu. „
Við erum báðar með ódrepandi ferðabakteríu og sáum þarna tækifæri til að sameina tvö áhugamál," segir Áslaug Rán Einarsdóttir sem ásamt Anítu Hafdísi Björnsdóttur hefur ferðast um heiminn til að fljúga á svifvængjum á ólíkum stöðum í nafni kvenfrelsis. „Við byrjuðum á að fara til Suðaustur-Asíu; Nepal, Indlands, Malasíu, Taílands og Indónesíu og flökkuðum þar um. Svo runnu peningarnir út, hlýtur að hafa komið gat á vasana hjá okkur, og leiðir skildi í fyrravor. Aníta varð eftir í Frakklandi en ég kom heim til Íslands og var hér um sumarið til að safna mér peningum," segir Áslaug Rán. „En við hættum samt ekkert að fljúga þótt við höfum undanfarið gert það hvor í sínu lagi. Í vetur var ég aðallega við Miðjarðarhafið og í Norður-Afríku, mest í Marokkó, en Aníta í Frakklandi og Grikklandi, þannig að við höfum ekki hist í ár."En hvenær hófst ævintýrið? „Aníta byrjaði 2007 og dró mig eiginlega út í þetta. Ég fór á námskeið 2009 hjá Fisfélagi Reykjavíkur og sogaðist inn í þetta af fullum krafti alveg um leið, þannig að nú vil ég helst ekkert annað gera en hanga uppi í himninum og horfa niður. Þetta er mesta frelsistilfinning sem hægt er að hugsa sér. Það nær ekkert til þín þarna uppi, ekkert áreiti, þetta er algjört frí frá öllum áhyggjum."Hvernig vaknaði sú hugmynd að tengja flugferðirnar við kvenfrelsi? „Við sátum einhvern tíma nokkur uppi í fjalli og biðum eftir því að vind lægði svo við gætum flogið. Við þær aðstæður skapast oft mikil stemning og umræðurnar fara á flug. Við fórum að tala um þá tilfinningu sem fylgir því að fljúga. Undantekningarlaust fannst fólki flugið vera frelsandi; að svífa á milli skýjahnoðranna og skilja allar áhyggjur eftir á jörðu niðri. Út frá þessum umræðum tókum við Aníta þá ákvörðun að helga flugferðir okkar frelsi kvenna."Áslaug Rán Einarsdóttir svífandi yfir Góa á Indlandi.Meirihluti þeirra sem sækja námskeið hjá Fisfélaginu eru konur, kann Áslaug Rán einhverja skýringu á því? „Nei, það er mjög óvenjulegt. Á flestum þeim stöðum þar sem við höfum flogið er ekki mjög algengt að konur séu í þessu sporti, þetta eru oftast að meirihluta til miðaldra karlar, en íslenskar konur hafa hrifist af þessu og síðustu tvö til þrjú árin hafa þær verið í meirihluta á öllum námskeiðum. Það eru einmitt að byrja námskeið núna í vikunni og ég hvet allar konur til að fara inn á fisflug.is og skoða hvort þetta sé ekki eitthvað sem hentar þeim." Ævintýrinu er hvergi nærri lokið og í sumar ætla þær stöllur að fljúga yfir þvert Ísland. „Við ætlum að reyna að krossa landið þvert og endilangt á vængjunum," segir Áslaug Rán. „Endanlegt ferðaplan er ekki komið, en um miðbik sumarsins munum við væntanlega leggja upp frá Kerlingarfjöllum og fara yfir landið fótgangandi og á flugi eftir því hvað aðstæðurnar bjóða upp á. Við munum sem sagt annað hvort bera vængina eða láta þá bera okkur. Það hefur ekki mikið verið flogið á þessum svæðum áður svo við vitum ekki alveg hverju má búast við." Hægt verður að fylgjast með ferð þeirra stallsystra um Ísland í sumar á síðunni theflyingeffect.com. fridrikab@frettabladid.is
Mest lesið Gugga í gúmmíbát fagnaði afmæli sínu með heitustu guggum landsins Lífið Fagnar því að hafa klárað „erfiðustu kappreiðar í heimi“ Lífið Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Lífið Hall og Oates ná sáttum Lífið Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Lífið Embla Wigum og Lindsey Lohan glæsilegar á rauða dreglinum Lífið Ragga Nagli minnir á „grænu flöggin“ í samböndum Lífið Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Lífið Hóta enn á ný að úthýsa vinsælli „spýtukarlanekt“ Hugleiks Lífið Hannaði innsetningargallann í þrívíddarforriti vegna tímaþröngar Lífið Fleiri fréttir Gugga í gúmmíbát fagnaði afmæli sínu með heitustu guggum landsins Hall og Oates ná sáttum Embla Wigum og Lindsey Lohan glæsilegar á rauða dreglinum Hannaði innsetningargallann í þrívíddarforriti vegna tímaþröngar Hóta enn á ný að úthýsa vinsælli „spýtukarlanekt“ Hugleiks Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Ragnheiður og Benedikt eiga von á jóladreng Fagnar því að hafa klárað „erfiðustu kappreiðar í heimi“ Ragga Nagli minnir á „grænu flöggin“ í samböndum Stjúpbörn- og foreldrar: „Alltof mörg tilfelli þar sem þetta gengur ekki nógu vel“ Elín Dís og Sigurður keyptu raðhús í Fossvogi á 175 milljónir Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Anton Corbijn heiðursgestur RIFF Með um 300 tegundir af rósum í garðinum sínum Jóhann Alfreð og Valdís keyptu hús í Mosfellsbæ Fyrsta tónlistarfólkið á almyrkvahátíðinni kynnt til leiks Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Aldraður boltasækir steig síðasta dansinn Suðrænn og ferskur þeytingur að hætti Jönu Eva Laufey og Haraldur stækka við sig á Skaganum „Dýrmætt að fá að hafa þetta svona persónulegt“ Eigendaskipti á Kaffi Laugalæk: Breyta til en lofa sömu stemningu Leifur Andri og Hugrún trúlofuð Fyrstu skrefin tekin á sama stað og símtalið um fæðinguna barst Stjörnulífið: Ástin, glimmer og ofurkroppar „Við ætlum að hlaupa fyrir hana Birtu okkar“ Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Superstore-leikari látinn Mugison gekk í það heilaga við litla útiathöfn Krakkatían: Afmælistónleikar, maraþon og bílpróf Sjá meira