Tískuföt á meðgöngu 25. maí 2011 17:00 Hera Guðmundsdóttir, sigurvegari fatahönnunarkeppni verslunarinnar Tveggja lífa, ásamt Sigríði Láru Einarsdóttur en hún rekur Tvö líf ásamt Ásdísi Birtu Gunnarsdóttur. Fréttablaðið/Stefán „
Ég gekk út frá því að fötin væru ekki frábrugðin venjulegum hversdagsfatnaði, nema að því leyti að hægt væri að gefa brjóst og að flíkurnar yxu með konunni á meðgöngunni," segir Hera Guðmundsdóttir, nemandi í fatahönnun við LHÍ, en lína hennar bar sigur úr býtum í samkeppni um meðgöngu- og brjóstagjafafatnað sem verslunin Tvö líf stóð fyrir. Hera fékk innblástur frá indverskum sari og þeirri staðreynd að indverskar konur klæðast ekki öðru en þær gera venjulega meðan á meðgöngu stendur. „Ég skoðaði mikið vafninga, kjóla sem bundnir eru utan um líkamann og hálsmál þar sem auðveldlega má gefa brjóst. Ég studdist líka við reynslusögur vinkvenna sem eiga börn og mömmu mína. Efnin valdi ég út frá þægindum en ekki síður gæðum, að flíkurnar líti eins út eftir níu mánuði og þoli mikinn þvott," segir Hera. Þessi atriði gerðu einmitt útslagið þegar kom að því að velja sigurvegarann að sögn Sigríðar Láru Einarsdóttur, annars eigenda Tveggja lífa. „Hera hannaði tískuflíkur sem endast þessi tvö ár og lengur. Hún lagði einnig áherslu á góð efni sem skiptir okkur miklu máli. Nú tekur við þróunarvinna í samvinnu við Heru og að afla styrkja til að framleiða flíkurnar," segir Sigríður Lára en stefnt er að því að selja línuna bæði hér á landi og erlendis.Tískuflíkur Heru, sem vaxa með bumbunni, þykja praktískar og flottar.„Við ætlum okkur að keppa með þessar vörur á alþjóðamarkaði. Við munum framleiða það sem við getum hér á Íslandi en draumurinn er að línan verði komin í verslanir árið 2013, en það veltur auðvitað á því hvernig gengur að fjármagna verkefnið. Þetta er í rauninni fyrsta íslenska sérhannaða meðgöngulínan af þessari stærðargráðu, ætluð fyrir erlendan markað og gamall draumur okkar Ásdísar Birtu Gunnarsdóttur að rætast," segir Sigríður. Spurð hvort sigur í keppni sem þessari hafi mikla þýðingu fyrir ungan fatahönnuð í námi segir Hera spennandi að fá að kynnast praktískum hluta fatahönnunargeirans. „Þetta var mjög skemmtilegt og krefjandi að hanna fyrir afmarkaðan kúnnahóp með sérþarfir. Það er líka alltaf gaman að fá viðurkenningu á því sem maður er að gera." heida@frettabladid.is
Mest lesið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Fjörutíu básar í garðinum og götumatur frá öllum heimshornum Matur Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist Fleiri fréttir Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Sjá meira