Á bókaða fjóra fundi í Hollywood 6. janúar 2011 09:00 Gestur Valur Svansson er á leiðinni til Los Angeles. Hann ætlar þó fyrst að hitta góðvini sína úr Klovn-tvíeykinu sem eru væntanlegir til landsins í dag. Fréttablaðið/GVA „
Ég átti von á þeim fyrr en það kom eitthvað upp á hjá þeim úti. En jú, ég reikna með því að hitta þá þegar þeir koma,“ segir Gestur Valur Svansson leikstjóri. Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær er Klovn-tvíeykið væntanlegt til Íslands í dag til að kynna kvikmynd sína Klovn: The Movie. Gesti Val og Casper Christensen varð ágætlega til vina síðasta sumar þegar þeir fóru saman á fund Adams Sandler í Los Angeles til að kynna nokkrar hugmyndir að kvikmyndum sem Gestur hafði sett niður á blað. Gestur Valur er reyndar búinn að sjá Klovn-myndina, fór út til Danmerkur á forsýningu hennar 14. desember síðastliðinn og var síðan með Klovn-dúettinum í eftirpartíi. Forsýningin var ansi skrautleg því samkvæmt dönskum fjölmiðlum sprönguðu fáklæddar stúlkur um ganga kvikmyndahússins og hláturtaugarnar voru rækilega kitlaðar þegar þeir Frank og Casper stigu á svið og sögðu frá uppákomum við tökur kvikmyndarinnar. Leikstjórinn, sem frumsýnir leikna þáttaröð á RÚV þegar Eurovision hefur runnið sitt skeið, er síðan á leiðinni til Los Angeles síðar í þessum mánuði þar sem hann mun sitja fjóra fundi með einhverjum stórlöxum úr kvikmyndaborginni. Hann vildi ómögulega upplýsa hverjir ættu eftir að sitja þennan fund en sagðist ætla að nýta tækifærið og heimsækja tökustað Baltasars Kormáks í New York sem þá verður byrjaður á Contraband með Mark Wahlberg og Kate Beckinsale í aðalhlutverkum.- fgg
Mest lesið „Fyrri kona mannsins míns er með Parkinson, ekki ég“ Áskorun Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Óléttan uppgötvaðist þremur dögum fyrir byrjun skólans Menning Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Lífið Kristmundur Axel tók við af Bubba Lífið Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Seinfeld og Friends-leikari látinn Lífið Michelle Trachtenberg er látin Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Fleiri fréttir Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Kristmundur Axel tók við af Bubba Seinfeld og Friends-leikari látinn Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Sjá meira