Undir stöðugu eftirliti lögreglu 6. júlí 2011 06:45 Konan útskrifast líklega í dag fremur en á morgun.
Móðir kornabarns sem fannst látið í gámi í Reykjavík á laugardag er undir stöðugu eftirliti lögreglu þar sem hún liggur á Landspítalanum. Hún hefur enda verið úrskurðuð í tveggja vikna gæsluvarðhald og til að sæta geðrannsókn. Gert er ráð fyrir að unga konan verði útskrifuð af spítalanum í dag eða í allra síðasta lagi á morgun. Hún mun þá verða færð til skýrslutöku hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Það var á laugardag sem komið var með konuna á bráðamóttöku Landspítala. Læknar töldu að hún hefði fætt barn á síðasta sólarhring. Lögreglan var kvödd til og fundu lögreglumenn lík fullburða sveinbarns í gámi við Hótel Frón á Laugavegi. Þar hafði konan starfað í um fjóra mánuði sem herbergisþerna og vissi samstarfsfólk hennar þar ekkert um að hún bæri barn undir belti. Konan flutti hingað til lands í október síðastliðnum. Hún bjó hjá samlanda sínum og föður hans um skeið. Í þá hringdi hún þegar hún hafði alið barnið á herbegi á hótelinu. Hún vildi fara heim en þeir ákváðu að fara með hana á bráðamóttökuna. - jss
Mest lesið Setur „stærsta samning í sögunni“ í uppnám Erlent Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Innlent Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Innlent Líkir kærunni við „faglega aftöku“ Innlent Evrópuleiðtogar bregðast við: „Við látum ekki fjárkúga okkur“ Erlent Ekki útilokað að Ísland sæti Grænlandstollum Erlent „Í mínum huga eru þetta klárar ærumeiðingar“ Innlent Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Innlent Einn endaði á hliðinni og þrjú klemmdust á milli Innlent Var í símanum við neyðarlínuna þegar ekið var aftan á hann Innlent Fleiri fréttir Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Vonar að skólarnir verði frjálsir frá símum í haust Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Líkir kærunni við „faglega aftöku“ „Vegferð ákæruvaldsins til skammar“ Menntamálaráðherra tekur yfir hjúkrunarheimilin Fjögur handtekin á Akureyri grunuð um innbrot Viðvarandi óvissuástand bitni á langtímaáætlunum fyrirtækja Einn endaði á hliðinni og þrjú klemmdust á milli Var í símanum við neyðarlínuna þegar ekið var aftan á hann Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna „Hef hvergi hallað réttu máli“ Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Fá þau að vera aftur á lista með Hildi? Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut og tveir fluttir á slysadeild Eigum eftir að sjá hvort Guðbrandur bæti upp fyrir hegðun sína Umfangsmikil lögregluaðgerð við Glerárgötu á Akureyri Öryrkjar eru með hærri laun en eldri borgarar Borgarstjóri fór með rangt mál Gagnrýnin hugsun skipti máli Krafa um að Margrét Löf verði gerð arflaus fer fyrir Landsrétt Hófu niðurrif á félagsheimilinu í leyfisleysi: „Skaðinn er skeður“ Fjórir slást um oddvitasæti Viðreisnar Afsögn þingmanns, hótanir Trumps og í beinni frá Svíþjóð Mun hærri dánartíðni og meiri örorka hjá fyrrum vöggustofubörnum „Í mínum huga eru þetta klárar ærumeiðingar“ Vilja Laugardalshöll líkt og þeim var lofað Kviknaði í Svarta sauðnum í Þorlákshöfn Taldi ekki sérstaka nauðsyn á að hneppa Helga Bjart í varðhald Sjá meira