Fær kennslustund hjá snillingi 6. júlí 2011 07:45 Ágústa, sem hefur áður lært á þverflautu, klarinett og píanó, hóf fiðlunám fyrir tveimur árum. Henni hefur gengið svo vel að Arnhildur grípur hana oft með að spila í messum og á tónleikum.
Þrettán ára fiðlunema, Ágústu Dómhildi Karlsdóttur, hlotnaðist í gær óvæntur heiður þegar einn allra virtasti fiðluleikari veraldar bauð henni ókeypis kennslustund. Rússinn Maxim Vengerov leikur á tónleikum í Hörpu á föstudag. Hann hefur um árabil verið einn eftirsóttasti og hæst launaði einleikari veraldar og á aðdáendur um heim allan. Tveir þeirra eru Ágústa og móðir hennar, Arnhildur Valgarðsdóttir, organisti í Lágafellskirkju. „Dóttir mín er búin að vera að læra á fiðlu í tvö ár og gengur alveg rosalega vel. Hún er dálítið „wunderkind“,“ útskýrir Arnhildur. „Svo fórum við að horfa á Maxim á Youtube og fórum að halda rosalega mikið upp á hann. Þegar ég sá að hann var að koma hringdi ég í Steinunni Birnu [Ragnarsdóttur, tónlistarstjóra Hörpu] og sagði: Jæja, nú er okkar maður að koma og við þurfum bara að hitta hann,“ segir hún. Það gekk eftir og mæðgurnar hittu snillinginn í gær. „Hann var alveg til í það. Þetta er svo mikill indælis- og öndvegismaður,“ segir Arnhildur. Í lok fundarins spurði Arnhildur hann í hálfkæringi hvort hann væri ekki til í að taka Ágústu í eina kennslustund og það stóð ekki á svari: tíminn verður á morgun klukkan fimm og Arnhildur á vart orð til að lýsa hrifningu sinni á Vengerov. „Hann er bara svo dásamlegur að gera þetta,“ segir hún. Að skilnaði gáfu mæðgurnar honum það sem Arnhildur kallar „krúttulegan Íslandspakka“, sem í var geisladiskur sem Arnhildur gerði með Hjörleifi Valssyni fiðluleikara og söngkonunni Ingu Backman, Heimsljós eftir Halldór Laxness í enskri þýðingu og mynd sem Ágústa málaði fyrir hann. - sh
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira