Borguðu klippingu næsta manns á eftir 6. júlí 2011 07:00 Fjöldi viðskiptavina Torfa Geirmundssonar greiddi klippingu fyrir þann sem á eftir kom. Mynd/HAG
Posinn á hársnyrtistofu Torfa Geirmundssonar, rakara við Hlemm, hefur ítrekað tekið rangar upphæðir af kortum viðskiptavina stofunnar á síðustu dögum. Fyrri viðskiptavinur borgar fyrir þann sem á eftir kemur. Torfi fékk ábendingu um villuna á laugardag, þegar viðskiptavinur hringdi inn og tjáði honum að tvær færslur hefðu verið teknar af kortinu hans. Fyrri upphæðin var sú sem hann greiddi en sú síðari var færsla þess viðskiptavinar sem á eftir kom. Rétt upphæð umrædds viðskiptavinar var 1.500 krónur en upphæð þess næsta var 8.700 krónur. Síðari færslan kom nokkrum mínútum á eftir þeirri fyrri. Viðskiptavinurinn sem átti að borga 8.700 krónur, greiddi ekki neitt. „Þetta er allt í tómri vitleysu hérna hjá mér,“ segir Torfi, og vill benda þeim viðskiptavinum sínum sem hafa lent í þessu á að hafa samband við sig. „Ég er alveg miður mín og finnst þetta ofboðslega leiðinlegt.“ Torfi bendir á að hann hafi fyrst og fremst áhyggjur af því að gallinn liggi í fleiri posum en sínum. „Það er engin leið að gera sér grein fyrir þessu nema menn skoði kortayfirlitið sitt,“ segir hann. Rétt upphæð prentast út úr posanum og kvitta viðskiptavinir undir þær. Þetta gerir það að verkum að annar hver viðskiptavinur fær ókeypis hársnyrtingu án þess að gera sér grein fyrir því að sá sem á undan kom borgi fyrir hann. Torfi hafði samband við Borgun, sem rekur greiðslufyrirkomulag stofunnar, á mánudag. Um klukkan tvö í gærdag komu starfsmenn frá Borgun og skiptu um posa. Haukur Oddsson, forstjóri Borgunar, segir gallann ekki liggja í kerfi Borgunar, heldur í posanum sjálfum. Færslurnar verði leiðréttar og verið sé að skoða hvað hafi farið úrskeiðis. „Það sem við sjáum í okkar kerfum er að gallinn liggur ekki þar,“ segir Haukur og segist ekki muna eftir því að þessi tiltekna bilun hafi áður komið upp. „Yfirleitt eru bilanirnar þannig að þær sjást strax. En því miður er það stundum svo að þær uppgötvast af notendunum. En bilanir geta komið fyrir hjá öllum,“ segir Haukur. Kerfisfræðingar Borgunar eru að skoða hvort villan hafi átt sér stað víðar. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira