Nauðganir verða ekki liðnar á Bestu hátíðinni Jón Hákon Halldórsson skrifar 6. júlí 2011 15:54 Hljómsveitin Quarashi spilar á Bestu hátíðinni. Mynd/ ÞÖK
Ofbeldi, og sér í lagi kynferðislegt ofbeldi, verður ekki liðið á Bestu hátíðinni sem fram fer um næstu helgi. Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu frá aðstandendum Bestu hátíðarinnar og hljómsveitarinnar Quarashi, sem spilar á hátíðinni. Quarashi hætlar að gefa Stígamótum 500 þúsund krónur af þeim tekjum sem hún hefur af því að koma fram á hátíðinni. Hátíðin fer fram um næstu helgi. „Þar sem nú stefnir í að allt að 10 þúsund manns muni safnast saman á Bestu útihátíðinni er það draumur hátíðarhaldara og þeirra hljómsveita sem þar koma fram að allir geti gengið frá stoltir og ánægðir. En umfram allt er það draumur allra að þeir sem hátíðina sækja geti sýnt og sannað að gróf ofbeldisbrot þurfa ekki að vera fastur fylgihlutur útihátíða á borð við þessa," segir í yfirlýsingu frá Quarashi og aðstandenum Bestu hátíðarinnar. „Ein nauðgun, eitt ofbeldisverk er einu of mikið," bæta þau við.Yfirlýsingin frá Bestu hátíðinni og Quarashi hljóðar svo í heild sinni:Oft á ári berast fregnir af því að ein eða fleiri nauðganir hafi átt sér stað á skemmtunum og útihátíðum og jafn oft er þessum ofbeldisverkum lýst í fjölmiðlum á þá leið að um "leiðinda atvik á annars glæsilegri hátíð" hafi átt sér stað. Forsvarsmenn Bestu hátíðarinnar, hljómsveitin Quarashi, sem og aðrar hljómsveitir sem þar koma fram, vilja leggja þunga áherslu á að ofbeldi og sér í lagi kynferðislegt ofbeldi, verði ekki liðið á hátíðinni. Þar sem nú stefnir í að allt að 10 þúsund manns muni safnast saman á Bestu útihátíðinni er það draumur hátíðarhaldara og þeirra hljómsveita sem þar koma fram að allir geti gengið frá stoltir og ánægðir. En umfram allt er það draumur allra að þeir sem hátíðina sækja geti sýnt og sannað að gróf ofbeldisbrot þurfa ekki að vera fastur fylgihlutur útihátíða á borð við þessa. "Ein nauðgun, eitt ofbeldisverk er einu of mikið." Nei hópurinn hefur verið starfandi síðan 2003 og hefur frá upphafi sótt útihátíðir til þess að vekja athygli á alvarleika nauðgana og fyrirbyggja að slík ofbeldisverk séu framin. Forsvarsmenn Bestu útihátíðarinnar eru Nei-hreyfingunni þakklátir fyrir hún hyggst mæta á hátíðina og verð öllum hátíðargestum sýnileg og að boðskapur hreyfingarinnar verði sem fyrirferðarmestur innan um alla tónlistina og gleðina.Þá hyggst hljómsveitin Quarashi gefa Stígamótum 500 þúsund krónur af þeim tekjum sem hún hefur af því að koma fram.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira