"Ígildi starfslokasamnings við íslenska bændur“ Þorbjörn Þórðarson skrifar 6. júlí 2011 18:46
Formaður Bændasamtakanna segir að hugmyndir um útreikning á tjóni bænda vegna afnáms tollverndar íslenskra matvæla með aðild að ESB, vera ígildi starfslokasamnings við íslenska bændur. Prófessor í lögfræði segir engar varanlegar undanþágur í boði frá löggjöf ESB. Í ritinu Landbúnaðarlöggjöf Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins eftir Stefán Má Stefánsson, prófessor í lögfræði við Háskóla Íslands, sem kom út í dag, kemur skýrt fram engar varanlegar undanþágur séu í boði frá löggjöf ESB, hvorki á sviði sjávarútvegs- né landbúnaðarmála. En í ritinu segir orðrétt: „Skoðun á aðildarlögum einstakra ríkja staðfestir að hingað til hefur ekki verið um varanlegar undanþágur að ræða, hvorki á sviði sjávaútvegsmála né landbúnaðarmála." (bls. 66). Við aðild að ESB falla niður tollar á innflutt matvæli, en Bændasamtökin krefjast áframhaldandi tollverndar íslenskra matvæla og vilja að þessu sjónarmiði verði haldið á lofti í viðræðum við sambandið. Utanríkisráðherra hefur sagt að verið sé að reikna út hvers virði tollverndin sé fyrir bændur og hvaða tjóni þeir verði fyrir með aðild. Hugsanlega væri hægt að bæta einhverjum bændum tjón sem af aðild hlýst, en er það eitthvað sem Bændasamtökin eru tilbúin að skoða? „Nei, með þessu er utanríkisráðherra að að segja hann ætli að gera bara starfslokasamning við íslenska bændur," segir Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtakanna. Ef þetta er rétt, er eitthvað að því að gera starfslokasamninga við óhagkvæm býli? „Við viljum verja íslenskan landbúnað í sinni fjölbreyttustu mynd. Hann er tiltölulega fábreyttur og það er mikilvægt að stunda landbúnað hér á Íslandi fyrir fæðuöryggi þjóðarinnar," segir Haraldur. Hver eru rökin fyrir því að reka óhagkvæm býli? „Hvaða býli eru óhagkvæm?" Þau býli sem verða fyrir tjóni þegar og ef tollverndin verður afnumin? „Við þurfum þá líka að þekkja verðmyndun vörunnar. Það liggur fyrir í öllum opinberum gögnum hvað bændur eru að fá fyrir sína vöru, en það er ekki útsöluverð í verslunum. Á þeirri leið, milli bóndans og neytandans eru fjölmargir liðir sem verður líka að kostnaðarreikna. Er landbúnaðurinn endilega óhagstæðastur?" Haraldur segir að fæðuöryggi verði í hættu með afnám tollverndar. Hvernig þá? „Þá er búið að veikja helstu undirstöðurnar undir aðal greinar landbúnaðarins. Það verða ekki rekstrarforsendur. Framleiðslutækin verða eyðilögð, en það er ekki hægt að kveikja á þeim þegar illa árar annarsstaðar," segir Haraldur Benediktsson.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira