Fyrirsætur í yfirstærð á forsíðu ítalska Vogue 8. júní 2011 13:00 Endurspegla raunveruleikann Þær Tara Lynn, Candice Huffine og Robyn Lawley prýða umdeilda forsíðu ítalska Vogue, en það er í fyrsta sinn sem þéttvaxnar fyrirsætur prýða forsíðu þessa fræga tískurits.
Miklar umræður hafa verið um forsíðu nýjasta tölublaðs ítalska Vogue, en hana prýða fyrirsætur í yfirstærð. Forsíða júlítölublaðs ítalska Vogue hefur vakið mikla athygli, en hana prýða fyrirsæturnar Tara Lynn, Candice Huffine og Robyn Lawley. Þær eiga það sameiginlegt að vera þyngri en gengur og gerist í tískuheiminum; eru fyrirsætur í yfirvigt eins og það kallast. Fyrirsæturnar klæðast undirfötum frá Givenchy-tískuhúsinu og er yfirskrift forsíðunnar „Belle Vere“ eða fallegur sannleikur. Skiptar skoðanir„Lesendur okkar hafa óskað eftir því að sjá venjulegar konur sem endurspegla raunveruleikann sem við búum í. Þeir vilja sjá heilbrigðar stelpur og ekki stelpur sem láta þyngdina stjórna lífi sínu,“ segir Franca Sozzani, ritstjóri blaðsins, en ítalska Vogue er þekkt fyrir að fara eigin leiðir og vera ögrandi í umfjöllun og myndbirtingu. Skiptar skoðanir eru um forsíðuna en flestir taka henni fagnandi og vilja meina að hún sé mikilvægt skref í baráttunni við brenglaðar líkamsmyndir tískuheimsins. Aðrir segja hana ódýra markaðssetningu og að rangt sé af blaðinu að ná sér í athygli með þessum hætti. Ögrandi og umdeilt blaðÞetta er ekki í fyrsta sinn sem ítalska Vogue vekur athygli á málefnum líðandi stundar í tölublöðum sínum. Fyrir þremur árum gaf tímaritið út The Black Issue, eða svarta tölublaðið, en þá var einungis notast við hörundsdökkar fyrirsætur og vakin athygli á kynþáttafordómum í tískuheiminum. Árið 2006 tók blaðið mið af stríðinu gegn hryðjuverkum, 2007 voru það áfengismeðferðir fræga fólksins og árið 2010 fékk olíuslysið í Mexíkó athygli. Núna verður ítalska Vogue að halda þessari þróun við, enda missir forsíðan tilgang sinn ef næsta tölublað skartar barnungri og tággrannri fyrirsætu eins og flest önnur tískurit. alfrun@frettabladid.is
Mest lesið Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Lífið Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Lífið Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Lífið Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin Lífið Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Lífið Arnhildur Pálmadóttir er borgarlistamaður Reykjavíkur Menning John Grant tók Eldborg með áhlaupi — en hjartað vann stríðið Gagnrýni „Ég er skíthræddur“ Tónlist Myndaveisla: Aldrei of gamall til að skella sér á bak Menning Veggjakrotað með kandýfloss á sýningunni „Hæhóogjibbíjei” Menning Fleiri fréttir Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Sjá meira