Milljarðar í framleiðslukostnað 16. júní 2011 12:00 stór bransi Íslenski sjónvarps- og kvikmyndabransinn hefur eytt 3,5 milljörðum undanfarin þrjú og hálft ár. Bjarnfreðarson er í hópi þeirra sem fengu endurgreiðslu frá iðnaðarráðuneytinu.
Íslensk framleiðslufyrirtæki í sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði hafa eytt 3,5 milljörðum íslenskra króna í framleiðslukostnað síðastliðin þrjú og hálft ár samkvæmt útreikningum Fréttablaðsins á tölum frá iðnaðarráðuneytinu. Endurgreiðsla frá ráðuneytinu til fyrirtækjanna á þessu tímabili nemur rúmlega 645 milljónum samkvæmt lögum um tuttugu prósenta endurgreiðslu. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá mun hluti úr stórmynd Ridley Scott, Prometheus, verða tekinn upp hér á landi og hluti af framleiðslukostnaðinum ratar í vasa ríkisins í formi skatta og annarra gjalda. Þær upphæðir gætu hlaupið á tugum ef ekki hundruðum milljóna. Scott fær hins vegar tuttugu prósenta endurgreiðslu eins og lög gera ráð fyrir. Samkvæmt útreikningi á tölunum frá iðnaðarráðuneytinu virðist árið 2009 hafa verið sérstaklega gæfuríkt fyrir íslensk framleiðslufyrirtæki en þá var rúmum milljarði eytt í framleiðslu á íslensku efni og upptökur fyrir erlend fyrirtæki. 2010 var einnig ákaflega gjöfult, en þá var framleiðslukostnaðurinn 950 milljónir miðað við útreikninga Fréttablaðsins. Alls fengu 53 verkefni endurgreiðslu frá iðnaðarráðuneytinu á þessum fjórum árum. Árið 2009 voru þau flest, eða alls fimmtán, en í ár eru þau þegar orðin tólf, jafn mörg og allt árið 2008.- fgg
Mest lesið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Menning Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Fleiri fréttir Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Sjá meira