Meistarinn og lærlingurinn 16. júní 2011 16:00 Flottir dómar Super 8 hefur fengið flotta dóma í bandarískum fjölmiðlum, en leikstjórinn JJ Abrams hefur lýst því yfir að hún sé óður sinn til geimverumynda Stevens Spielberg.
Steven Spielberg er hinn eini sanni gullkálfur í Hollywood; hann er galdramaður á hvíta tjaldinu og kann þá list manna best að búa til alvöru poppkorns-kvikmyndir. Kvikmyndin Super 8 verður frumsýnd um helgina í Sambíóunum. Myndin segir frá hópi krakka sem festa á filmu magnaða atburðarás í bandarískum smábæ þegar lest frá ameríska hernum fer út af sporinu og óargadýr utan úr geimnum gengur laust. Aðalhlutverkin eru í höndum ungra og óreyndra leikara, fyrir utan Elle Fanning, sem hefur verið fyrir framan tökuvélarnar nánast allt sitt líf. Af eldri leikurum má kannski einna helst nefna Kyle Chandler sem áhorfendur Skjás eins gætu kannast við úr sjónvarpsþáttunum Friday Night Lights. Leikstjóri myndarinnar er JJ Abrams sem sló fyrst í gegn með sjónvarpsþáttunum sínum Lost. Super 8 gaf honum hins vegar stærsta tækifæri lífs hans þegar hann fékk að vinna með æskuhetjunni sinni; Steven Spielberg. Abrams var níu ára þegar Spielberg gerði Jaws, magnaða hákarlamynd sem sló öll met í aðsókn og gerði hann að einum umtalaðasta leikstjóra Hollywood. Framhaldið þekkja allir, Spielberg reyndist vera töframaður í kvikmyndalistinni og er talinn einn áhrifamesti leikstjóri sem Hollywood hefur alið af sér. Abrams hefur lýst því yfir að kvikmyndir Spielbergs séu ein af meginástæðum þess að hann fór út í kvikmyndagerð, það hafi því verið draumur fyrir hann þegar Spielberg féllst á að framleiða Super 8. Abrams hefur sagt að myndin sé óður til geimverumynda Spielbergs, E.T. og Close Encounters of the Third Kind. Hún skartar glæsilegum tæknibrellum eins og lög gera ráð fyrir í geimverumyndum en Abrams segir Spielberg hvorki hafa veitt sér ráð hvað þær varðar né um söguþráðinn. Hann hafi gefið sér ráð um hvernig ætti að umgangast unga leikara. „Spielberg vildi að ég leyfði krökkunum að notast við textavél þannig að þau þyrftu ekki að kvíða því að gleyma textanum og gætu einbeitt sér að leiknum,“ útskýrir Abrams í samtali við Daily News. Þrjú ár eru nú liðin frá því að Spielberg sat sjálfur í leikstjórastólnum en aðdáendur hans geta farið að hlakka til; það styttist í kvikmynd hans um ævintýri Tinna og leyndardóma einhyrningsins og þá er Spielberg að leggja lokahönd á leikaraliðið í kvikmynd sinni um Abraham Lincoln. Sú verður frumsýnd á næsta ári en það er Óskarsverðlaunahafinn Daniel Day-Lewis sem leikur hinn goðsagnakennda 16. forseta Bandaríkjanna. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Fleiri fréttir Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sjá meira