Aðdáandi Quarashi fékk gigg 16. júní 2011 07:00 David Demkö pantaði sér flugfar til Íslands til að sjá tónleika Quarashi. Hann vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar honum var boðið að troða upp á Bestu útihátíðinni. „
Ég er mjög spenntur fyrir því að spila á Íslandi en líka kvíðinn því þetta verður í fyrsta skipti sem ég spila í útlöndum,“ segir plötusnúðurinn DJ Red. Fréttablaðið greindi á dögunum frá væntanlegri Íslandsför DJ Red, eða David Demkö eins og hann heitir réttu nafni. Hann er harður aðdáandi íslensku rappsveitarinnar Quarashi og þegar hann frétti af endurkomutónleikum sveitarinnar á Bestu útihátíðinni var hann ekki lengi að bóka sér flugmiða til Íslands. Skipuleggjendur hátíðarinnar lásu viðtalið í Fréttablaðinu og tóku eftir því að David kemur fram sem plötusnúður. Þeir voru ekki lengi að bjóða honum að troða upp á hátíðinni sem hann þáði með þökkum. „Ég er mjög spenntur að spila á hátíðinni en ég er ennþá meira spenntur að sjá Quarashi. Ég hélt að ég myndi aldrei sjá bandið á sviði,“ segir plötusnúðurinn. DJ Red segir að hann sé vanur að spila á minni tónleikum en þeim sem fram undan séu. „En það er bara hallærisleg leið til að segja að ég spila venjulega fyrir litla hópa í partíum og þannig viðburðum,“ segir hann og hlær. „Ég hef reyndar alveg spilað á stórum viðburðum en það er meiri bakgrunnstónlist en alvöru framkoma samt.“ David Demkö hefur komið fram sem plötusnúður síðustu fimm árin. Hann hefur lengi verið kallaður Red vegna háralitar síns og því kom aldrei annað plötusnúðanafn en DJ Red til greina. Hægt er að hlusta á tónlist hans á DJRed1.bandcamp.com og svo má finna aðdáendasíðu hans á Facebook undir OfficialDJRed. En hverju mega gestir Bestu útihátíðarinnar eiga von á frá Dj Red? „Ég ætla að spila fjölbreytta tónlist, hip hop, raftónlist og fleira. Ég er spenntur að sjá hvað fólk vill heyra og hvernig það bregst við lögum og efni sem það þekkir ekki.“-hdm
Mest lesið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Uppskrift: Bragðmikill grillaður kjúklingaborgari að hætti Rakelar Maríu Lífið samstarf Fleiri fréttir Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Sjá meira