Ísland í gegnum hliðargluggann 4. júní 2011 14:00 Svavar Jónatansson gaf út verkið Innland/Útland-Ísland, sem samanstóð af 40 þúsund ljósmyndum í hreyfimyndarformi. Fréttablaðið/Vilhelm
Svínafellsjökull Ljósmyndasýning Svavars Jónatanssonar verður opnuð Skaftafelli í dag. Myndirnar eru unnar úr myndbandsverki sem hann lauk við í fyrra. Svavar Jónatansson ljósmyndari hefur síðan 2007 ferðast reglulega með flutningabílum og rútum um landið og tekið myndir út um hliðarrúðuna á nokkurra sekúndna fresti. Hann hefur komið sér upp myndabanka sem í eru um 200 þúsund myndir. Í fyrra kom út verkið Innland/Útland-Ísland, myndbandsverk sem samanstóð af 40 þúsund ljósmyndum og frumsaminni tónlist Daníels Ágústs Haraldssonar. Svavar heldur tvær sýningar með sérunnu efni frá svæðum Vatnajökulsþjóðgarðs og Snæfellsjökulsþjóðgarðs. Sú fyrri opnar í gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs í Skaftafelli í dag. „Upphaflega ætlaði ég að ferðast um landið á mótorhjóli og taka stakar myndir hér og þar,“ segir Svavar um verkefnið. „En síðan þróaðist hugmyndin út í það að fá far með flutningabílum og rútum og taka myndir á nokkurra sekúndna fresti.“ Svavari telst til að hann hafi farið fjóra heila hringi í kringum landið, auk ótal styttri skottúra. Hið mikla magn mynda sem hann hefur tekið býður upp á nær óteljandi möguleika til úrvinnslu, til dæmis að afmarka sýningar við ákveðin svæði og stækka ákveðnar myndir. „Ég komst að því að ég átti fleiri en eina mynd frá sumum stöðum sem voru teknar frá svo til nákvæmlega sama sjónarhorni. Í kjölfarið fór ég að leita skipulega og hef fundið slíkar myndir frá um hundrað ólíkum stöðum. Í fyrstu réð tilviljun því að ég náði fleiri en einni mynd af sama stað en með árunum eru ákveðnir staðir sem ég þekki úr grunninum sem ég mynda alltaf þegar ég fer fram hjá þeim; það er næstum eins og ég sé með þá forritaða í hausnum. Ég held ég eigi til dæmis um fimmtán myndir af Svínafellsjökli.“ Gífurleg vinna fór í að vinna úr og skipulegga myndagrunninn, en Svavar segir umfangið aldrei hafa dregið úr honum móð. „Þvert á móti, þessi hugmynd hefur haldið mér hugföngnum frá því hún byrjaði að gerjast 2007 og kveikt enn meira í mér eftir því sem á líður frekar en hitt.“ Sýning Svavars frá Snæfellsjökulsþjóðgarði opnar á Hellnum 22. júní næstkomandi. Spurður um framhaldið segist Svavar ætla að halda áfram að safna myndum í sarpinn og bæta við nýjum landshlutum. „Svo væri auðvitað frábært að fara út fyrir landsteinana og vinna með annars konar landslag.“ Sýningin í Skaftafelli er í samstarfi við Vatnajökulsþjóðgarð og styrkt af Vinum Vatnajökuls. Sýningin á Snæfellsnesi er í samstarfi við Snæfellsjökulsþjóðgarð og styrkt af Menningarráði Vesturlands. Báðar sýningarnar standa fram á haust. Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á inlandoutland.combergsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Fjörutíu básar í garðinum og götumatur frá öllum heimshornum Matur Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Sjá meira