Röddin er hljóðfærið mitt 4. júní 2011 17:30 Rokkararnir í Steelheart spila á Nasa á miðvikudagskvöld þar sem Mili (lengst til hægri) verður vafalítið í essinu sínu. Mynd/Samantha Baker
Rokkararnir í Steelheart spila á Nasa á miðvikudag. Söngvarinn Mili passar vel upp á háa rödd sína, sem er alveg jafn kraftmikil og fyrir tuttugu árum. Bandaríska rokkhljómsveitin Steelheart sló í gegn í byrjun tíunda áratugarins með kraftballöðunni She"s Gone þar sem rödd króatíska söngvarans Miljenko Matijevic, eða Mili, nær hæstu hæðum. Smáskífulagið I’ll Never Let You Go náði einnig miklum vinsældum og var annað mest umbeðna lagið á MTV. Síðan þá hefur sveitin hætt tvívegis en alltaf rifið sig upp á nýjan leik. Steelheart spilar á Nasa á miðvikudagskvöldið. Mili er spenntur fyrir komunni til Íslands og ætlar að gefa sér tíma til að kynnast landinu áður en tónleikarnir hefjast. „Ég hlakka til skoða mig um og fá mér gott lambakjöt í leiðinni,“ segir hann, greinilega búinn að frétta af hinu bragðgóða íslenska kjöti. Steelhart er í hörkuformi að hans sögn og tilbúin í tónleikahald úti um allan heim í sumar, þar á meðal í Svíþjóð, Indónesíu, Púertó Ríkó og Suður-Kóreu. „Við höfum verið að vinna eins og brjálæðingar við að endurbyggja Steelheart. Tónlistin hefur breyst og þroskast, alveg eins og við sjálfir. Við tókum upp Black Dog [með Led Zeppelin] og ætlum að reyna að gefa út nýtt smáskífulag á þriggja mánaða fresti,“ greinir Milo frá. Aðspurður segir hann að Steelheart sé ekki lengur sú hár-metal hljómsveit sem hún var til að byrja með. „En þetta tímabil var frábært og við skemmtum okkur ótrúlega vel. En það er kominn tími til að breytast. Tónlistin okkar hefur þróast og í framtíðinni viljum við prófa öðruvísi hluti.“ Árið 1992 gaf Steelheart út plötuna Tangled in Reins. Á tónleikaferðalagi til að fylgja henni eftir lenti Mili í alvarlegu slysi þegar ljósamastur upp á hálft tonn féll á hann á miðjum tónleikum eftir að hann reyndi að klifra upp á það. Við tók löng sjúkrahúslega og hljómsveitin lagði upp laupana. „Þetta var mjög erfiður tími eftir slysið. Það var ekki fyrr en tveimur vikum eftir að ég kom heim sem ég byrjaði að finna fyrir miklum höfuðverkjum. Ég var mörg ár að jafna mig,“ segir Mili. Fjórum árum eftir slysið endurvakti Mili Steelhart en þá hafði tónlistarslandslagið breyst og hljómsveitin lagðist aftur í dvala. Það var svo 2001 að Mili fékk uppreisn æru þegar hann var fenginn til að syngja fyrir leikarann Mark Wahlberg í kvikmyndinni Rock Star. Tónlistin í myndinni hitti í mark, þar á meðal lag Steelheart, We All Die Young. Mili er þekktur fyrir kraftmikla rödd sína sem kemst óvenju hátt. Aðspurður segir hann röddina enn þá vera í toppstandi en viðurkennir að hann þurfi að leggja mikið á sig til að halda henni góðri. „Ég stunda líkamsrækt, drekk ekki áfengi og nota engin eiturlyf. Maður verður sífellt að vera vakandi, enda er röddin hljóðfærið mitt.“ Hann nýtur mikillar virðingar í bransanum og söng til að mynda með Ray Manzarek og Robby Krieger úr hljómsveitinni The Doors á síðasta ári. Gerð heimildarmyndar um ævi hans hefur einnig staðið yfir undanfarið tvö og hálft ár og fer hann til heimaborgar sinnar Zagreb í sumar þar sem tónlistarhátíð verður haldin í tilefni myndarinnar. Enn eru til miðar á tónleikana á Nasa á miðvikudaginn og fást þeir á Midi.is. Miðaverð er 3.500 krónur og munu hljómsveitirnar Dúndurfréttir, Exizt og Atrum hita upp. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Hipsumhaps rýfur þögnina Tónlist Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Lífið Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Lífið Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Lífið Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin Lífið Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Lífið Arnhildur Pálmadóttir er borgarlistamaður Reykjavíkur Menning „Ég er skíthræddur“ Tónlist John Grant tók Eldborg með áhlaupi — en hjartað vann stríðið Gagnrýni Myndaveisla: Aldrei of gamall til að skella sér á bak Menning Fleiri fréttir Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Sjá meira