Þingmenn á stífum dansæfingum 6. desember 2011 10:15 Ólína Þorvarðardóttir og Pétur Blöndal eru í hópi alþingismanna sem dansa á Degi rauða nefsins. „
Þetta verður mjög fróðlegt," segir Ólína Þorvarðardóttir þingkona, sem leggur hart að sér þessa vikuna við að undirbúa hátíðahöld á Degi rauða nefsins, sem haldinn verður með mikilli viðhöfn á föstudaginn. Fjöldi sjálfboðaliða vinnur nú að skemmti- og söfnunardagskrá sem verður sýnd í opinni dagskrá Stöðvar 2. Meðal þess sem boðið verður upp á er óvenjulegt dansatriði þar sem þingmenn og björgunarsveitarfólk munu sýna á sér nýjar hliðar. „Mér féllust eiginlega fætur þegar ég uppgötvaði í hverju dansinn var fólginn. Ég hélt að við fengjum að svífa þarna um gólfið í einhverjum hefðbundnum danssporum og rifja upp gamla takta frá barnaskóladanskennslunni," segir Ólína, sem efast um að sú danskennsla muni hjálpa henni á æfingum hjá atvinnudansaranum Peter Anderson þar sem hún mun læra hópdans ásamt fleiri þingmönnum. Tilhlökkun og örlítið stress eru í þingmannaliðinu, en þeir sem munu sýna glæsilega takta á dansgólfinu á föstudaginn eru auk Ólínu Vigdís Hauksdóttir, Höskuldur Þórhallsson, Ólöf Nordal, Pétur Blöndal, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Margrét Tryggvadóttir og Árni Þór Sigurðsson. Fjöldi björgunarsveitarfólks tekur einnig þátt og á meðal þeirra verða tveir þyrluflugmenn og tveir meðlimir rústabjörgunarsveitarinnar sem fór til Haítí á síðasta ári. Innt eftir því hvort Íslendingar fái að sjá nýja hlið á henni á föstudagskvöldið, játar hún því. „Ég óttast það já, að þjóðin muni sjá nýja hlið á mér þarna. Svo er annað hvort hún lætur sér vel líka. Ég vona bara að fólk taki viljann fyrir verkið." - bb
Mest lesið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Þráhyggja ástarinnar og dulúð bakherbergjanna Gagnrýni Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Ung húð þarf ekki tíu skrefa húðrútínu Lífið samstarf Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist „Það má herma“ Tíska og hönnun Fleiri fréttir Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Sjá meira