Velferðarráðherra biðlar til tannlækna um samvinnu Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 11. maí 2011 19:00
Velferðarráðherra biðlar til tannlækna að koma til samvinnu við ríkið um tannlæknaþjónustu fyrir börn og ungmenni undir 18 ára aldri. Markmiðið er að ríkið greiði 75 prósent af allri þjónustu barna. Um tvöhundruð umsóknir hafa þegar borist um endurgjaldslausa tannlæknaþjónustu fyrir börn efnaminni foreldra. Þá virðast tannlæknar sammála um að tannheilsu þjóðarinnar sé að hraka. Í fréttum okkar í gær gagnrýndi formaður Tannlæknafélagsins að þjónustan sé einungis í boði á höfuðborgarsvæðinu svo að hluti fjármagnsins fer í ferðakostnað. Velferðarráðherra segir mikilvægt að bæta tannheilsu íslenskra barna. „það skiptir okkur miklu máli að geta boðið þessa þjónustu um allt land, þetta átak er bara til að bregðast við ákveðnum vanda og leysir ákveðna hluti en það er framtíðarsýnin sem skiptir mestu máli og framtíðarlausnin," segir Guðbjartur Hannesson. Framtíðarlausnin er að greiða 75 prósent af öllum tannlækningum barna undir 18 ára og til lengri tíma er markmiðið að tannlækningar verði meðhöndlaðar eins og önnur heilbrigðisþjónusta með almennri gjaldtöku. „En til þess að það geti orðið þá þurfum við að ná samningum við tannlækna til að vita hvert verðið er til þess að við vitum 75 prósent af hverju það er." Ábyrgðin hvíli á samfélaginu í heild sem og tannlæknum og velferðarráðuneytinu. „þannig við þurfum að stilla okkur saman og leysa þetta mál, það er alveg klár ósk mín," segir Guðbjartur að lokum.
Mest lesið Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Innlent Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Innlent Fleiri fréttir „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Sjá meira