ZikZak tryggði sér Hálendið 23. desember 2011 12:00 Ragnar Bragason hefur verið fenginn til að leikstýra kvikmynd eftir bók Steinars Braga, Hálendið, en framleiðslufyrirtækið ZikZak vann kapphlaupið um bókina. Fyrstu áætlanir gera ráð fyrir að tökur hefjist sumarið 2013. Fréttablaðið/Valli
Framleiðslufyrirtækið ZikZak vann kapphlaupið um kvikmyndaréttinn að bók Steinars Braga, Hálendið. Eins og Fréttablaðið greindi frá á dögunum höfðu sjö aðilar sýnt verkinu áhuga en að endingu voru það Þórir Snær Sigurjónsson og félagar sem klófestu gripinn. Ragnar Bragason, leikstjóri Vaktar-seríanna og Bjarnfreðarson, hefur verið fenginn til að leikstýra myndinni og skrifa handritið og fyrstu áætlanir gera ráð fyrir að tökur hefjist sumarið 2013. „Það er svona fyrsta eðlilega dagsetningin upp á handritaskrif og fjármögnun,“ segir Ragnar sem kveðst ætla að vera trúr höfundarverki Steinars enda segir hann bókina henta hvíta tjaldinu einstaklega vel. Þetta er ekki eina bók Steinars Braga sem ZikZak á kvikmyndaréttinn að, það festi líka kaup á bókinni Konur. Hálendið gerist, eins og nafnið gefur til kynna, uppi á íslenska hálendinu og segir frá því þegar tvenn hjón úr höfuðborginni verða strandaglópar eftir að bíll þeirra keyrir á hús. Þetta verður önnur íslenska myndin með frekar stuttu millibili sem gerist uppi á hálendinu því eins og komið hefur fram standa nú yfir tökur á vísindaskáldsagnartryllinum Frost í leikstjórn Reynis Lyngdals. Ragnar kveðst ekki hafa neina eina skýringu á því af hverju íslenskir kvikmyndagerðarmenn horfi allt í einu til fjalla. „Ætli menn séu ekki bara að leita inn á við. Þegar erlendir kvikmyndagerðarmenn koma hingað þá fara þeir beint út á land en það hefur ekki mikið verið um það í íslenskum kvikmyndum að undanförnu. Íslenskt hálendi er náttúrlega einstaklega myndrænt.“ Ragnar reiknar með því að hefja tökur á næstu kvikmynd sinni, Málmhaus, í mars á næsta ári. Þorbjörg Helga Dýrfjörð leikur þar aðalhlutverkið en meðal annarra leikara má nefna Halldóru Geirharðsdóttur, Ingvar E. Sigurðsson og Hannes Óla Ágústsson. „Við erum að klára síðustu fjármögnun og hún er alltaf upp á von og óvon enda er umhverfið erlendis erfitt sökum stöðu krónunnar.“ freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Fleiri fréttir Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Sjá meira