Arnaldur missti toppsætið til Yrsu 8. desember 2011 08:00 Yrsa komst loksins upp fyrir Arnald á bóksölulistanum sömu viku og listinn birtist ekki. Súrsæt tíðindi fyrir Pétur Má Ólafsson. „
Þetta eru bæði góðar fréttir og ömurlegar fréttir,“ segir Pétur Már Ólafsson, útgefandi hjá Bjarti & Veröld. Athygli hefur vakið að bóksölulistinn sem hefur birst vikulega í gegnum árin var hvergi sjáanlegur í síðustu viku. Þá gerðist það einmitt í fyrsta sinn í tíu ár að Arnaldur Indriðason átti ekki vinsælustu íslensku skáldsöguna, heldur Yrsa Sigurðardóttir, skjólstæðingur Péturs Más, með bókina Brakið. „Þetta er svolítið eins og að vera með fæðingardaga fjölskyldunnar í lottóinu og í vikunni sem maður gleymir að spila koma tölurnar upp. En kosturinn við þetta er að það eru meiri líkur á að þetta gerist aftur heldur en að tölurnar í lottóinu komi aftur,“ segir Pétur Már, sem frétti af því fyrir viku að listinn kæmi ekki út þá vikuna. „Við vorum býsna súr yfir því, vegna þess að listinn skiptir máli í fjórar vikur á ári og fyrstu vikuna sem hann skiptir máli kemur hann ekki.“ Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er ástæðan fyrir því að bóksölulistinn var ekki birtur sú að starfsmaður Rannsóknarseturs verslunarinnar sem vinnur listann var í fríi. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins var Arnaldur síðast í öðru sæti á listanum árið 2001 þegar Ólafur Jóhann Ólafsson skákaði Grafarþögn með Höll minninganna. „Þessi listi hefur verið birtur í sextán ár með smá hléi og það hefur aldrei fallið út birting. En þegar hún fellur loks niður þá hafa orðið mikil tíðindi,“ segir Pétur Már, sem tekur fram að hann sé einnig ánægður með vinsældir Arnaldar. „Það er auðvitað gleðilegt að tvær íslenskar skáldsögur skuli seljast svona vel.“ - fb
Mest lesið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið Þetta hefur gefið mér nýtt líf Lífið samstarf Birna María og Egill eignuðust dreng Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Fleiri fréttir Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Sjá meira