Frumsýna nýja heimildarmynd um Nóbelsskáldið 8. desember 2011 14:00 Heimildarmyndin um Halldór Laxness tók rúmlega eitt ár í vinnslu.
Ný heimildarmynd um Halldór Kiljan Laxness verður frumsýnd í Bíói Paradís í kvöld. Fjöldi erlendra viðmælenda fjallar um Halldór í samhengi sem ekki hefur áður birst í myndum um skáldið. „Við erum ánægðir með útkomuna," segir Halldór Þorgeirsson kvikmyndargerðarmaður. Ný heimildarmynd hans, Hauks Ingvarssonar og Sigurðar Valgeirssonar, um Nóbelsskáldið Halldór Kiljan Laxness, HKL, verður frumsýnd í dag. „Verkefnið varð nú eiginlega til þannig að stundum vorum við spurðir hvort ekki væri til heimildarmynd um Halldór Laxness. Þær eru nú vissulega til einhverjar, en þær eru voðalega mikið sniðnar að þörfum Íslendinga. Þessi mynd er tekin upp í Ameríku og Evrópu og við tölum við fólk sem veit býsna mikið um Laxness en er ekki Íslendingar. Stundum gleymum við að flestir lesendur Halldórs tala ekki íslensku. Við getum rétt ímyndað okkur hversu stór lesendahópurinn er úti þegar bækur hans hafa selst í hundruðum þúsunda og jafnvel milljónum eintaka." Í myndinni er sjónum beint að pólitískum skoðunum Halldórs Laxness, hvernig þær mótuðu hann sem rithöfund og sviptu hann stórum tækifærum síðar meir. Halldór segir að í myndinni fjalli þeir um skáldið í samhengi við þá heimsatburði sem höfðu áhrif á hann. „Halldór fer út sem ungur maður, varla orðinn sautján ára, og dvelur mikið erlendis. Hann er á Ítalíu þegar fasistarnir taka völdin, og á Spáni. Hann er í Þýskalandi og fer til Sovétríkjanna. Hann er í Ameríku þegar stóra kreppan skellur á. Hann stígur eiginlega úr þessum annars rólega heimi hér, yfir í þennan heim eins og hann var eftir fyrri heimsstyrjöld þar sem var bara ringulreið." Aðstandendur myndarinnar eiga nú í viðræðum um dreifingu erlendis, en líklegt er að mikil eftirspurn sé eftir ítarlegri mynd um forvitnilega ævi skáldsins. HKL verður sýnd í kvöld, klukkan 20 í Bíói Paradís við Hverfisgötu. bergthora@frettabladid.is
Mest lesið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Adda og Alfreð eignuðust dreng Lífið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Fleiri fréttir Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Sjá meira