Harold og Kumar skjóta jólasveininn 8. desember 2011 23:00
A Very Harold and Kumar 3D Christmas, teiknimyndin Puss in Boots og The Rum Diary og eru þær kvikmyndir sem verða frumsýndar um helgina í kvikmyndahúsum borgarinnar. A Very Harold and Kumar 3D Christmas er þriðja myndin um þessa misgáfuðu félaga. Að þessu sinni er myndin í þrívídd en þeir John Cho og Kal Penn eru á sínum stað ásamt Neil Patrick Harris úr sjónvarpsþáttunum vinsælu How I Met Your Mother. Óþarfi er að fara nákvæmlega ofan í saumana á söguþræði myndarinnar en í stuttu máli fylgist myndin með jólaundirbúningi Harolds og Kumars sem er, eðli málsins samkvæmt, nokkuð óvenjulegur. Vinsældir teiknimyndarinnar Puss in Boots hafa komið flestum í opna skjöldu. Myndin er „spin-off" af Shreck-kvikmyndunum sem nutu talsverðra vinsælda. Að þessu sinni er það stígvélaði kötturinn sem er í kastljósinu en þessi hugrakki riddari glímir jafnt við illmenni og kattareðli sitt. Myndin er sýnd í bæði tvívídd og þrívídd með ensku og íslensku tali. Í ensku útgáfunni er það að sjálfsögðu Antonio Banderas sem talar fyrir köttinn en Salma Hayek fyrir aðal-læðuna. Þriðja myndin er síðan The Rum Diary með Johnny Depp og Aaron Eckhart í aðalhlutverkum. Myndin er byggð á samnefndri skáldsögu Hunters S. Thompson og segir frá drykkfelldum blaðamanni sem fer í mikla rannsóknarferð til Púertó Ríkó en þar kemst hann meðal annars í kynni við romm og fagrar frúr.
Mest lesið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Adda og Alfreð eignuðust dreng Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Sjá meira