Vilja gera dansinn aðgengilegri fyrir alla 8. desember 2011 20:00 Þeir Pathipan Kristjánsson, Tu Ngoc Vu, Kristófer Aron Garcia Thorarensen, Suwit Chotnok, Surathep Khampamuang, Ratthaphon Parasri, Tenzin Khechok,Rajdeep Gurung og Theeraphol Arayarangsee mynduðu danshópinn Area of Stylez rétt fyrir prufurnar en ef þeir sigra í Dans dans dans vilja þeir búa til dansstúdíó og leyfa þeim sem ekki eiga mikinn pening að læra dans. Fréttablaðið/stefán
Danshópurinn Area of Stylez samanstendur af strákum frá Taílandi, Nepal, Víetnam, Tíbet og Bandaríkjunum, en þeir vöktu athygli fyrir vasklega framgöngu í sjónvarpsþættinum Dans dans dans. Í yfir eitt ár hafa strákaranir æft saman í litlu æfingahúsnæði í Engihjalla. „Við bjuggumst kannski ekki við því að komast í úrslitaþáttinn en takmarkið var alltaf að komast eins langt og við gætum og vekja á okkur athygli,“ segir Kristófer Aron Garcia Thorarensen, einn af níu meðlimum danshópsins Area of Stylez. Danshópurinn vakti athygli fyrir skemmtilegt atriði í dansþættinum Dans dans dans á Ríkissjónvarpinu síðasta laugardagskvöld, en þeir komumst áfram í úrslitaþáttinn næstu helgi. Hópurinn samanstendur af níu strákum frá Taílandi, Nepal, Tíbet og Víetnam auk Kristófers, sem er frá Íslandi og Bandaríkjunum. Hann hefur búið á Íslandi alla sína ævi en misjafn bakgrunnur er hjá strákunum, sem eru á aldrinum 16-25 ára og ýmist í skóla eða að vinna. „Við erum allir af höfuðborgarsvæðinu en erum með æfingaraðstöðu í Engihjallanum þar sem við höfum verið að dansa saman í eitt ár,“ segir Kristófer. Danshópurinn Area of Stylez varð hins vegar ekki til fyrr en rétt fyrir prufurnar fyrir þáttinn. „Ég sá auglýsingu um þáttinn í blaðinu og stakk upp á því við strákana að við tækjum þátt.“ Strákarnir eru flestir sjálflærðir í dansinum og segir Kristófer að þeir noti mikið vefsíðuna YouTube til að læra ný spor. „Ég var í samkvæmisdansi þegar ég var lítill og fór svo á eitt breiknámskeið en eftir það var mér boðið að vera með strákunum. Við reynum að hittast á hverjum degi og æfa okkur,“ segir Kristófer. Núna æfa strákarnir í fjóra tíma á dag fyrir úrslitakvöldið, en þeir sem eru í skóla eru einnig í prófum núna. Sjálfur er Kristófer í íþróttafræði í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og í miðri prófatörn. „Við þurfum að skipuleggja okkur mjög vel núna og reyna að einbeita okkur að skólanum líka þó að það sé smá erfitt þegar það er svona stutt í úrslitin.“ Sigurvegari Dans dans dans hlýtur eina milljón króna í verðlaun og eru strákarnir aðeins farnir að leiða hugann að verðlaununum. „Við mundum vilja nýta peninginn í að bæta dansumhverfið og gera það aðgengilegra fyrir alla. Búa til stúdíó og byrja kannski á því að setja upp spegla í æfingaherbergið okkar. Við viljum leyfa þeim sem eiga ekki mikinn pening að æfa dans og hafa gaman. Það er það sem skiptir aðalmáli, að hafa gaman,“ segir Kristófer og lofar skemmtilegu atriði frá danshópnum á laugardaginn kemur. alfrun@frettabladid.is
Mest lesið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Adda og Alfreð eignuðust dreng Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Sjá meira