Hugsaði ekki út í afleiðingarnar 15. júní 2011 21:00 Paul McCartney rifjaði það upp á dögunum þegar Bítlarnir hættu störfum.
Paul McCartney hefur viðurkennt að hann hafi ekki hugsað út í afleiðingarnar þegar hann lýsti því yfir fyrir fjörutíu árum að hann hygðist ekki semja fleiri lög með John Lennon. McCartney hefur almennt verið talinn sá sem leysti Bítlana upp árið 1970. Hann var í viðtali vegna fyrstu sólóplötu sinnar og sagðist ekki ætla að vinna með John Lennon aftur. Og þar með var Bítlaævintýrið úti. „Ég hef verið sagður vera mjög fljótfær. Ég verð mjög ákafur þegar ég fæ hluti á heilann og það er yfirleitt gott, þá kemur maður hlutunum í verk. Öðru hvoru getur þetta hins vegar valdið ákveðnum vandræðum af því að maður hugsar ekki út í afleiðingarnar. Og á þessum tíma hugsaði ég ekkert út í þær, ég var bara að gefa út plötu með efni sem ég kunni ákaflega vel við.“ Paul segir að hann hafi hitt hina meðlimi Bítlana mánuði áður og þar hafi John lýst því yfir að hann ætlaði að yfirgefa hljómsveitina. Sambandsslit Bítlanna vörpuðu skugga á útgáfu sólóskífu Pauls en sjálfur kveðst hann vera stoltur af henni, hún hafi rutt brautina fyrir heimagerðar plötur. Paul var upptökustjórinn á henni og lék á nánast öll hljóðfærin sjálfur. „Þegar maður hugsar um það eru ótrúlega margar plötur gerðar á þennan hátt í dag af því tækninni hefur fleygt mikið fram. Og í raun og veru var ég hálfgerður brautryðjandi á þessu sviði án þess að gera mér grein fyrir því.“
Mest lesið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Fleiri fréttir Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sjá meira