Lífið

Framleiða einn vinsælasta söngleik ársins

Óskar Eiríksson hjá Leikhúsmógulnum framleiðir söngleikinn Silence! sem var valinn á topp 10 lista Times Magazine yfir bestu leikrit ársins.
Óskar Eiríksson hjá Leikhúsmógulnum framleiðir söngleikinn Silence! sem var valinn á topp 10 lista Times Magazine yfir bestu leikrit ársins. fréttablaðið/valli
„Þetta er alveg frábært og við erum í skýjunum með viðtökurnar,“ segir Óskar Eiríksson, framkvæmdastjóri Leikhúsmógulsins en söngleikur í þeirra framleiðslu var á dögunum valinn á Topp 10 lista Time Magazine yfir bestu leikrit og söngleiki ársins.

Um er að ræða söngleikinn Silence! er hann er byggður á kvikmyndinni Lömbin Þagna eða The Silence of the Lambs. Söngleikurinn er sýndur í 9th Space Theatre-leikhúsinu í New York og á Leikhúsmógúllinn heimsréttinn á honum. Hugmyndin er óneitanlega frumleg og ekki margir sem geta ímyndað sér söngleik upp úr hryllingsmyndinni frægu um mannætuna Hannibal Lecter.

„Ég verð að viðurkenna að ég var ekki alveg að kaupa hugmyndina strax þegar hún var borin undir mig og setti fram þá kröfu að þetta yrði að vera fyndinn söngleikur. Að setja upp svona söngleiki er áhætta og ekki var víst að áhorfendur myndu kveikja á gríninu,“ segir Óskar en söngleikurinn sló vægast sagt í gegn og hefur, að hans sögn, fengið geysilega góða umfjöllun úti.

„Söguþræði myndarinnar er fylgt og lögin byggð á frægum setningum úr myndinni. Ég er núna búinn að sjá sýninguna tíu sinnum og gæti séð hana oftar. Þetta er alveg ótrúlega skemmtilegt,“ segir Óskar en á dögunum kom stjórnandi frægasta morgunþáttar Bandaríkjanna, Kelly Ripa, á sýninguna og talaði svo um hana í heilar fimm mínútur í þættinum daginn eftir. „Hún skemmti sér konunglega og þetta var ómetanleg auglýsing fyrir okkur,“ segir Óskar en næsta skref er setja sýninguna upp í Suður-Afríku, Ástralíu, London og jafnvel á Íslandi. „Okkur langar mikið að setja söngleikinn upp hér í Gamla Bíó. Við þurfum bara að finna góðan þýðanda fyrst.“- áp






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.