Framleiða einn vinsælasta söngleik ársins 12. desember 2011 12:00 Óskar Eiríksson hjá Leikhúsmógulnum framleiðir söngleikinn Silence! sem var valinn á topp 10 lista Times Magazine yfir bestu leikrit ársins. fréttablaðið/valli „
Þetta er alveg frábært og við erum í skýjunum með viðtökurnar,“ segir Óskar Eiríksson, framkvæmdastjóri Leikhúsmógulsins en söngleikur í þeirra framleiðslu var á dögunum valinn á Topp 10 lista Time Magazine yfir bestu leikrit og söngleiki ársins. Um er að ræða söngleikinn Silence! er hann er byggður á kvikmyndinni Lömbin Þagna eða The Silence of the Lambs. Söngleikurinn er sýndur í 9th Space Theatre-leikhúsinu í New York og á Leikhúsmógúllinn heimsréttinn á honum. Hugmyndin er óneitanlega frumleg og ekki margir sem geta ímyndað sér söngleik upp úr hryllingsmyndinni frægu um mannætuna Hannibal Lecter. „Ég verð að viðurkenna að ég var ekki alveg að kaupa hugmyndina strax þegar hún var borin undir mig og setti fram þá kröfu að þetta yrði að vera fyndinn söngleikur. Að setja upp svona söngleiki er áhætta og ekki var víst að áhorfendur myndu kveikja á gríninu,“ segir Óskar en söngleikurinn sló vægast sagt í gegn og hefur, að hans sögn, fengið geysilega góða umfjöllun úti. „Söguþræði myndarinnar er fylgt og lögin byggð á frægum setningum úr myndinni. Ég er núna búinn að sjá sýninguna tíu sinnum og gæti séð hana oftar. Þetta er alveg ótrúlega skemmtilegt,“ segir Óskar en á dögunum kom stjórnandi frægasta morgunþáttar Bandaríkjanna, Kelly Ripa, á sýninguna og talaði svo um hana í heilar fimm mínútur í þættinum daginn eftir. „Hún skemmti sér konunglega og þetta var ómetanleg auglýsing fyrir okkur,“ segir Óskar en næsta skref er setja sýninguna upp í Suður-Afríku, Ástralíu, London og jafnvel á Íslandi. „Okkur langar mikið að setja söngleikinn upp hér í Gamla Bíó. Við þurfum bara að finna góðan þýðanda fyrst.“- áp
Mest lesið „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Þetta gekk eins og í lygasögu“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér Lífið „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Lífið „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Lífið Fleiri fréttir „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Er ástin blind? Eru konur ástsjúkari en karlar? Kom gríðarlega stórum hlut í gegnum kleinuhring án þess að skemma hann Förgun bóka áþekk því að lóga gæludýrum Sjá meira