Búnir að venjast fyrirsætustörfunum 8. desember 2011 10:00 Mikið er lagt á sig til að geta tekið þátt í heimsleikunum. Myndir/vera pálsdóttir
Slökkviliðsmenn mæla ekki með því að vera ber að ofan í nálægð við eld. Sala á árlegu dagatali slökkviliðsmanna hefst í dag. Ágóðann nota þeir til að komast á heimsleika slökkviliðsmanna. „Þetta gengur rosalega vel, hefur alltaf selst upp," segir Pálmi Hlöðversson slökkviliðsmaður. Hann og félagar hans sem stefna á heimsleika slökkviliðsmanna gefa líkt og fyrri ár út dagatal til að safna fyrir ferðinni á leikana. „Við byrjuðum á þessu árið 2007, þá vorum við akkúrat tólf sem vorum að fara. Það er hrikalega dýrt að fara út og við vorum að vesenast með fjármögnunina þegar einhver fékk þessa snilldarhugmynd. Síðan þá höfum við getað fjármagnað ferðina eingöngu með þessari sölu," segir Pálmi, en árlega prenta þeir 3.000 eintök af dagatölum sem meðlimir slökkviliðsins prýða. Pálmi játar því að þeir séu að venjast fyrirsætustörfunum. „Menn voru svona hálffeimnir fyrst, að vera berir að ofan hangandi uppi á vegg hjá fólki í heilan mánuð. Ísland er lítið land og allir þekkja alla, en þetta hefur vanist mjög vel. Núna komust færri að en vildu." Góð stemning ríkir í kringum dagatalsgerðina innan slökkviliðsins og Pálmi segir mikið rætt og hlegið innan hópsins. Í ár ákváðu þeir að stíga næsta skref og fengu fjölda fagmanna til liðs við sig, þar á meðal Veru Pálsdóttur ljósmyndara. „Það var mikið fjör í tökunum. Menn lögðu alveg allt í sölurnar. Við vildum ekkert Photoshop þannig að sumir fóru berir að ofan út í sjó og aðrir fengu smá brunasár á bakið – við erum náttúrulega ekki vanir að vaða berir að ofan inn í eld, og mælum ekkert með því." Pálmi vonast til þess að hærra fari af þátttökunni á næstu leikum, en síðan íslenskir slökkviliðsmenn mættu fyrst árið 1999 hafa þeir unnið til fleiri en tuttugu verðlauna, bæði í hefðbundnum íþróttagreinum og slökkviliðstengdum greinum. „Hérna heima vita fæstir af þessu. Við smyrjum bara á okkur olíu, seljum dagatal og förum út." Þeir sem vilja tryggja sér eintak af dagatalinu geta hitt á slökkviliðsmennina fyrir framan verslanir Eymundsson á Skólavörðustíg og Austurstræti í dag og á morgun á milli 16-19. Þar fer fram sérstök forsala, Sjávargrillið býður gestum og gangandi upp á jólasúpu og Te og kaffi hellir upp á hátíðarkaffi. bergthora@frettabladid.ishraustlegir Æfingar fyrir keppnina eru teknar alvarlega og af miklum metnaði.flottar myndir Fyrirtækið Viðvera aðstoðaði slökkviliðsmennina í ár og útkoman er flott.
Mest lesið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Adda og Alfreð eignuðust dreng Lífið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Fleiri fréttir Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Sjá meira