Myndband Duran Duran bannað – aftur 7. desember 2011 12:00
Nýjasta myndband "80 hetjanna í Duran Duran hefur verið tekið úr spilun af tónlistarstöðvunum MTV og VH1 þar sem myndbandið þykir of ögrandi og krassandi. Sænski leikstjórinn Jonas Åkerlund stýrði myndbandinu en það skartar mörgum af frægustu ofurfyrirsætum samtímans í aðalhlutverkum. Breska poppsveitin Duran Duran er ekki dauð úr öllum æðum og hefur verið að kynna breiðskífuna All You Need is Now sem kom út á síðasta ári. Sveitin fékk einn umdeildasta myndbandaleikstjóra heims, Jonas Åkerlund, til að gera myndband við lagið Girl Panic en Åkerlund gerði meðal annars hið ákaflega klámfengna Pussy með rokksveitinni Rammstein og Telephone með þeim Beyoncé og Lady Gaga. Útkoman reyndist vera níu mínútna löng stuttmynd með þeim Naomi Campbell, Cindy Crawford, Evu Herzigovu, Helenu Christensen og Yasmin Le Bon í aðalhlutverkum. Sem sagt, frægustu fyrirsætur allra tíma samankomnar í einu og sama myndbandinu. Fyrirsæturnar leika meðlimi Duran Duran sem sjálfir birtast í mýflugumynd í líki bílstjóra, ljósmyndara, barþjóna og vikapilta. En þrátt fyrir háan framleiðslukostnað og mikla vinnu ákváðu bæði MTV og VHI að banna myndbandið samkvæmt frétt á vef contactmusic.com. Þar kemur fram að MTV og VHI hafi talið myndbandið vera of ögrandi og krassandi ásamt því að vörumerkja-innsetning sé alltof „augljós" og of mikil í myndbandinu, um sé að ræða dulbúna auglýsingu fyrir hinar og þessar vörur. „Viðbrögð MTV fara yfir strikið, þarna er ekki verið að brjóta blað í sögu tónlistarmyndbanda sem eru yfirleitt alltaf umdeild. Miðað við sum myndbönd er Girl Panic tiltölulega sakleysislegt," hefur vefurinn eftir heimildarmanni sínum sem bendir jafnframt á að yfir fjórar milljónir hafi séð það á myndbandavefnum YouTube. „Allir skemmtu sér konunglega við gerð myndbandsins sem hefur öll vörumerki Duran Duran, sjálfshæðnin og húmorinn eru aldrei langt undan." Eins merkilegt og það kann að hljóma eru nákvæmlega þrjátíu ár liðin síðan myndband með Duran Duran var bannað síðast. Það var myndbandið Girls on Film þar sem fáklæddar stúlkur tókust á í glímu og sviptu loks sig og keppinauta sína klæðum. Það hneykslaði rækilega þegar það var frumsýnt og var í kjölfarið sett á svartan lista MTV og annarra sjónvarpsstöðva. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Björk og Yara nýtt par Lífið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Adda og Alfreð eignuðust dreng Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Sjá meira