Bloggarar græða á tá og fingri 29. nóvember 2011 19:00 Kelly Framel.
Vinsældir tískublogga hafa vaxið síðustu ár og nú fylla bloggarar fremstu sætin á tískusýningum stóru tískuhúsanna þar sem áður mátti sjá ritstjóra og leikara. Mörg fyrirtæki hafa greint gróðavon í þessum bloggsíðum og má nú velta fyrir sér hlutleysi þeirra er halda síðunum úti. Vefmiðlarnir WWD.com og Fashionista.com hafa fjallað um málið og komust að því að vinsælustu bloggararnir græða stórkostlega á keyptum umfjöllunum auk þess sem þeir hljóta ýmsar hönnunarvörur að gjöf gegn því skilyrði að fjallað sé um þær. Ónefndur bloggari sagði í viðtali við Fashionista.com að flest tískuhúsin sendi bloggurum vörur gegn umfjöllun. „Þetta er endalaus hringekja af mútum," sagði bloggarinn. Lesendur bloggsíðna treysta gjarnan á að verið sé að fjalla um tiltekna vöru á hlutlausan hátt en ekki gegn gjaldi og má því deila um hvort bloggarar hafi fallið í þá gryfju að selja ástríðu sína fyrir vörur eða peninga.Glamourai Kelly Framel heldur úti bloggsíðunni The Glamourai og segist vinna eftir ströngum siðareglum er hún hefur sjálf sett sér. Hún merki til að mynda vel allar keyptar umfjallanir. „Ég vil algjört ritfrelsi og hafnaði nýverið samningi þar sem fyrirtækið vildi ákveða orðaval og framsetningu vörunnar á síðunni minni. Fyrirtækið hélt að það gæti átt í sömu samskiptum við mig og sölufólk þegar keypt er umfjöllun."Susie Bubble. Susie Bubble Susie Bubble er þekktasti bloggari Breta og starfaði áður sem ritstýra Dazed Digital sem er vefútgáfa tímaritsins Dazed & Confused. Hennar tekjur koma frá auglýsingum og samstarfi við tískumerki á borð við Gap, Selfridges, Topshop og Benetton.Hanneli Mustaparta. Hanneli Mustaparta Hanneli er einn helsti tískubloggari Noregs en þar gilda strangar reglur um óbeinar auglýsingar á bloggsíðum. Bloggurum hefur verið gert að merkja vel allar færslur sem teljast til óbeinna auglýsinga. Hanneli er þó búsett í Bandaríkjunum og óvíst hvort hún fari eftir norsku reglunum.Elin Kling.Nordicphotos/getty Elin Kling Elin hefur unnið náið með H&M og var að auki fyrsti bloggarinn sem tískumerkið fékk til að hanna línu fyrir sig. Elin rekur eigið veftímarit auk bloggsins og fjallar gjarnan um vörur sem hún hefur fengið að gjöf en tekur oftast fram að um gjafavöru sé að ræða.Brian Boy. Brian Boy Brian Boy hefur haldið úti bloggi frá árinu 2004 og dag hvern heimsækja um fjórar milljónir manna síðuna hans og er bloggið hans eina tekjulind. „Ég græði mest af auglýsingum en svo fæ ég einnig greitt fyrir að sækja ýmsa tískuviðburði og önnur tilfallandi verkefni eins og að stílisera fyrir H&M."
Mest lesið „Fyrri kona mannsins míns er með Parkinson, ekki ég“ Áskorun Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Lífið Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Óléttan uppgötvaðist þremur dögum fyrir byrjun skólans Menning Seinfeld og Friends-leikari látinn Lífið Kristmundur Axel tók við af Bubba Lífið Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Michelle Trachtenberg er látin Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Fleiri fréttir Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Kristmundur Axel tók við af Bubba Seinfeld og Friends-leikari látinn Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Sjá meira