John Hurt leikur Alla ríka 23. nóvember 2011 08:00 Elfar og Hurt hittust á blaðamannafundi í London þegar stuttmyndin Sailcloth var sýnd. Elfar skrifaði handrit myndarinnar sem gerð er í minningu afa Elfars, Alla ríka, eins þekktasta útgerðarmanns í sögu Íslands. „
Mín stefna var aldrei að verða þaulsetinn sem forstjóri, hugurinn stefndi alltaf á skapandi greinar,“ segir kvikmyndagerðarmaðurinn Elfar Aðalsteinsson. Elfar á óvenjulegri feril að baki en margir í hans starfi, hann var forstjóri útgerðarfélagsins Eskju á Eskifirði, sat í stjórn knattspyrnufélagsins Stoke og er barnabarn Alla ríka, eins þekktasta útgerðarmanns í sögu Íslands. Elfar gegndi forstjórastöðu Eskju í fimm ár og flutti síðan með fjölskylduna í sveitaþorp á Bretlandseyjum fyrir um sjö árum. Og hann viðurkennir að sumir sveitungar hans hafi haldið að hann væri klikkaður. Elfar hefur náð eftirtektarverðum árangri í kvikmyndalistinni. Stuttmyndin Sailcloth, sem skartar sjálfum John Hurt í aðalhlutverki, hefur hlotið verðlaun á kvikmyndahátíðum úti um allan heim og það hefur vakið athygli hvernig óreyndum íslenskum leikstjóra tókst að fá hinn margverðlaunaða og virta Hurt til að leika þögult hlutverk, ein þekktasta rödd kvikmyndasögunnar segir ekki eitt orð. Elfar segir að það þurfi reyndan leikara til að koma slíku hlutverki til skila. „Ég skrifaði hlutverkið með John í huga og sendi handritið síðan á umboðsskrifstofuna hans. Skömmu seinna fékk ég símhringingu þar sem umboðsmaðurinn tilkynnti mér að Hurt vildi hitta mig á hóteli í Soho. Þannig að hann tók mig í áheyrnarpróf en ekki öfugt. En það gekk nógu vel til að hann tæki hlutverkið að sér,“ útskýrir Elfar. Sú saga gengur fjöllum hærra fyrir austan að Sailcloth sé að einhverju leyti byggð á Alla ríka. Héraðsfréttablaðið Austurglugginn fjallaði til að mynda um málið fyrir helgi. Þar var haft eftir Elfari að það væru margar persónulegar tilvitnanir í Alla ríka í myndinni en hann vilji eftirláta fólki að finna sínar eigin túlkanir. Í samtali við Fréttablaðið sagði Elfar það að hluta til rétt að persóna Johns Hurt væri byggð á Alla ríka: „Myndin er gerð í minningu hans,“ segir hann. Elfar rekur framleiðslufyrirtækið Berserk Films og er með tvö handrit í smíðum. Annað þeirra er nútímaútgáfa af Macbeth eftir William Shakespeare. Svo er önnur stuttmynd hans, Subculture, sýnd á kvikmyndahátíðum um allan heim. „Ég er að skoða hvað ég tek mér fyrir hendur næst, hvort það verður hér úti eða heima á Íslandi,“ segir Elfar sem var þó ekki alveg blautur á bak við eyrun þegar leikstjóraferillinn hófst í Bretlandi. Hann var meðal framleiðenda í kvikmyndunum Sveitabrúðkaup eftir Valdísi Óskarsdóttur og Mömmu Gógó eftir Friðrik Þór. „Ég vil helst taka pásu frá framleiðslunni til að einbeita mér að handritaskrifum og leikstjórninni – allavega í bili.“freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Eru með 28 husky hunda inn á heimilinu sínu Lífið Munnvatnið skiptir öllu máli Lífið Fréttatía vikunnar: Stöð 2, fótbolti og slys Lífið Röddin með stóru Erri og greini lögð á hilluna Lífið Rúm ungbarna eigi að vera ljót og leiðinleg Lífið Fróun í beinni útsendingu og uppruni FM-hnakkans Lífið Ráðin nýr forstöðumaður Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri Menning Myndband við Þjóðhátíðarlagið frumsýnt á Vísi Lífið samstarf Heitur Teitur selur Lífið Iðnaðarmaður ársins hlustar á IceGuys til að koma sér í stuð Lífið samstarf Fleiri fréttir Eru með 28 husky hunda inn á heimilinu sínu Fréttatía vikunnar: Stöð 2, fótbolti og slys Munnvatnið skiptir öllu máli Kærleiksherferð til heiðurs Bryndísi Klöru og betra samfélagi Heitur Teitur selur Fróun í beinni útsendingu og uppruni FM-hnakkans Svona verður dagskráin á 17. júní í Reykjavík Rúm ungbarna eigi að vera ljót og leiðinleg Hundrað ára afmæli bílsins í uppnámi eftir brunann Króli og Birta eiga von á barni Glæsihöll Haraldar við Elliðavatn Röddin með stóru Erri og greini lögð á hilluna Sabrina Carpenter gagnrýnd fyrir að ýta undir hlutgervingu kvenna Bjössi í Mínus er ný rödd Sýnar Hreinar húðvörur sem þú vildir óska að þú hefðir kynnst fyrr Fær ýmist þumalinn eða löngutöng vegna einkanúmersins Gríman og glens í Borgarleikhúsinu Vinsælasta TikTok-stjarna heims handtekin og yfirgefur Bandaríkin Ævintýralega flóknar útskýringar á framtaksleysi og leti Pharoahe Monch með De La Soul á Lóu Skvísaðu þig upp fyrir íslenska sumarið Villi á Benzanum slapp með skrekkinn Átta ára meðgöngu loksins að ljúka Forsetabörnin loksins komin heim Herra Hnetusmjör og Sara keyptu draumahúsið Stjörnulífið: Sjóðheit og löng helgi Sly Stone er látinn Enn fjölgar í Hraðfréttafjölskyldunni Máli Baldoni vísað frá Ísland í neðsta og næstneðsta sæti hjá Ísraelum Sjá meira